Skuggatorg myndast
Götumyndin við Ingólfstorg og Aðalstræti hefur þegar breyst með tilkomu nýrra bygginga Morgunblaðið/Sverrir
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is
„Við sem erum hérna samankomin erum hópur fólks sem einhvern veginn rataði saman í kringum þetta mál eingöngu. Við viljum mótmæla fyrirhugaðri breytingu Vallarstrætis og Ingólfstorgs,“ sagði Björn B. Björnsson í upphafi blaðamannafundar sem haldinn var í Fógetahúsinu í Aðalstræti 10 í gær.
Hugmyndir eru uppi um að færa tvö gömul hús sem standa sunnan megin við Ingólfstorg eina 17 metra inn á torgið og byggja stórt hótel á reitnum sem húsin standa á núna.
Borgarbúum gefst núna tækifæri, til 11. september, til að gera athugasemdir við tillöguna á slóðinni skipulag.is. „Tillagan er að okkar mati unnin út frá hagsmunum lóðareigenda fyrst og fremst,“ hélt Björn áfram, „en ekki út frá hagsmunum borgarbúa.“ Við breytinguna mun Ingólfstorg minnka verulega, skuggavarp verður af húsunum sem færast inn á torgið auk þess sem fyrirhugað hótel á að vera fimm hæðir. Björn sagði tillöguna fela í sér óafturkræf spjöll á borginni. „Ingólfstorg verður með þessu skuggatorg, en við viljum hafa sól á Ingólfstorgi,“ sagði hann.
Vallarstræti verður við breytinguna afar þröngt þannig að þar muni hvorki komast rútur né bílar. „Sundið sem þar myndast hefur þegar fengið nafnið pissusund því allir geta séð fyrir sér þá notkun á götunni,“ sagði Björn.
Nasa myndi hverfa með öllu
Við breytinguna mun húsið sem tónlistarstaðurinn Nasa er í hverfa með öllu, en áform eru uppi um að í framtíðinni verði eftirlíking tónlistarsals Nasa sett upp í kjallara hótelsins.Hópurinn veltir þeirri spurningu upp hvort þörf sé fyrir nýtt hótel á þessum stað þar sem 370 hótelherbergi eru þegar í næsta nágrenni. Arkitektastofan Gláma Kím hefur gert úttekt á breytingunni og í niðurlagi hennar segir m.a.: „Reykjavíkurborg þarf að láta vinna heildstætt deiliskipulag fyrir Ingólfstorg þar sem hagsmunir heildarinnar verði hafðir að leiðarljósi og skoðað hvort ekki megi varðveita og endurnýja húsin við Vallarstræti með öðrum hætti en hér er gert ráð fyrir.“
Blásið hefur verið til tónleika á Ingólfstorgi á morgun til að vekja athygli á málinu. Dagskráin er í mótun en eftirtaldir listamenn hafa staðfest þátttöku: Hjálmar, Hljómsveit Tómasar R. Einarssonar, Buff og Páll Óskar. „Og vonandi bætast einhverjir við,“ lauk Samúel J. Samúelsson máli sínu. Heimasíða áhugahópsins verður jafnframt opnuð í dag;


































