Fordæma samning OR um HS
Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og andstyggð á því að sveitarfélög geti tekið sér það gerræðisvald að koma auðlindum þjóðarinnar í hendur einkaaðila án nokkurra lýðræðislegrar umræðu eða þverpólítisks vilja í samfélaginu.
Þetta kemur fram í ályktun frá félagsfundi Borgarahreyfingarinnar sem haldinn var í fyrradag. Þar fordæmir hreyfingin það harkalega, að þjóðin sé svipt nýtingarrétt sínum á eigin auðlind í 65 ár í allt að 130 ár sem hún segir fordæmislausan árafjöldi sé miðað við vestræn lýðræðisríki á borð við Bandaríkin sem miði við 10 ár.
„Jafnframt fordæmir Borgarahreyfingin þann samning sem nú liggur fyrir að eigi að samþykkja hjá Reykjavíkurborg um að koma hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku í hendur einkaaðila með lítilli umræðu og í raun án nokkurs umboðs eða þverpólitísks vilja hins almenna borgara.
Þegar litið er yfir samninginn og skarpir menn hafa reiknað út frá uppgefnum forsendum, má glögglega sjá að Reykvíkingar munu tapa hið minnsta um 5 milljarða sem samsvarar rekstri leikskólakerfisins í hálft ár eða í versta falli 9,4 milljarðar u.þ.b sem er nær því kostnaður borgarinnar við að reka leikskólakerfið í nær því ár.
Einstaka furðu vekur það svo og er í raun algjörlega óásættanlegt að OR skuli svo veita kúlulán á lægri vöxtum en vel greiðslufær stórveldi fá á sama tíma og OR er að greiða Hafnarfirði verðtryggt lán til baka á 4,5% vöxtum fyrir hlut Hafnarfjarðar í HS Orku. Auk þess sem furðulegt má telja að 100 milljónum sé fleygt í ráðgjafafyrirtæki fyrrum starfsmanna Landsbankans fyrir þessa algjörlega óásættanlega sölu á sama tíma og verið sé að skera niður annars staðar í samfélaginu,“ segir m.a. í ályktun félagsfundar Borgarahreyfingarinnar.
Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar ályktar því svo að borgarstjórn beri að hafna þessum algjörlega óásættanlega samning sem ekki sé gerður í þágu hins almenna borgara og minnir borgarstjórn á að hún eigi að vera að vinna í þágu almennings en ekki gegn hagsmunum borgarbúa líkt og í þessu máli. „Það er svo óafsakanlegt að Orkuveita Reykjavíkur sé svo að taka veð eingöngu í hlutabréfum HS Orku en ekki í neinum raunverulegum eigum og er það fordæmt með öllu að um slík 2007 bókhaldsveð séu notuð miðað við afleiðingar annarra slíkra fyrir íslenskt samfélag.
Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar ályktar einnig að grípa beri harkalega í taumana og þessi dulbúna tilraun til einkavæðingar á auðlindum þjóðarinnar með yfirskini nýtingarréttar, verði tafarlaust stöðvuð með öllum tiltækum ráðum svo sem inngripi skilanefnda og þjóðnýtingar fyrirtækjanna sem um ræðir ef þörf krefur.
Að lokum vill Borgarahreyfingin hvetja alla þá sem ekki stendur á sama, óháð skoðunum, til að senda borgarfulltrúum bréf og tölvupósta eða hringja til að lýsa vanþóknun sinni yfir. Einnig hvetur hún alla þá sem vettlingi valda til að fjölmenna á borgarráðsfund næstkomandi fimmtudag til að sýna óánægju sína í verki,“ segir í niðurlagi ályktunarinnar.


































