Fréttaskýring: Bragðast kindin betur beint frá bónda?
mbl.is/Árni Torfason
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Auðvitað ímyndar maður sér að salan minnki eitthvað, en ég hef ekki orðið var við það enn sem komið er,“ segir Birgir Hauksson, bóndi á Hellu við Mývatn. Samdráttur hefur verið í sölu kindakjöts í sumar og er nú meira um að dýrari hlutar á borð við læri og hryggi sitji eftir í verslunum, á meðan aukin sala er í frampörtum.
Birgir, sem var nýkominn heim úr sláturhúsinu með skrokka á leið í reykhúsið, er í hópi þeirra bænda sem selja kindakjöt beint frá býli. Líkt og Birgir þá voru þeir bændur sem Morgunblaðið ræddi við hóflega bjartsýnir. Vissulega sé ekki komin full reynsla á hvernig kjötsala verði þennan veturinn, enda sláturtíð rétt að hefjast. Haustið fari hins vegar ekki verr af stað en í fyrra og bæði pantanir og fyrirspurnir eru farnar að berast.
„Mér sýnist á öllu að fólk ætli að fylla í frystikistur sínar með því að kaupa beint frá býli,“ segir Hlédís Sveinsdóttir á Fossi á Snæfellsnesi, sem þegar er farin að fá pantanir frá fólki sem áður hefur keypt af þeim á Fossi. „Það eru margir í föstum viðskiptum við bændur. Kaupa alltaf kjöt frá vissum bæ, tvíreykt hangikjöt á beini frá öðrum og heimagerða sultu frá þeim þriðja. Það bætist alltaf við og bændur eru stöðugt að auka framleiðslu sína.“
Hissa ef markaðurinn héldi sér ekki
Hjá Austurlambi fara haustviðskiptin af stað með svipuðum hætti og í fyrra. „Það er töluvert mikið um sömu viðskiptavini og þeir panta frá sínum bæ,“ segir Sigurjón Bjarnason, umsjónarmaður þessara regnhlífarsamtaka bænda á Austurlandi. En sjö bændur selja kjöt sitt undir merki Austurlambs þetta haustið.Vilhjálm Vernharðsson á Möðrudal á Fjöllum hefur ekki annað eftirspurn eftir hangikjöti sínu undanfarin ár og á ekki von á að það breytist. „Þetta eru ekki minni pantanir en undanfarin ár og þó að það sé kannski ekkert að marka enn þá yrði ég hissa ef minn markaður héldi sér ekki,“ segir hann „Þetta eru mikið til sömu kúnnarnir og hafa verið það til fjölda ára“.
Hagnaður beint til bónda
Margrét Ingjaldsdóttir, bóndi í Þjórsárnesi við Þjórsá, ber sig sömuleiðis vel. „Við erum ekki stór en þetta fer vel af stað. Við erum rétt svo að byrja að auglýsa og pantanirnar eru strax farnar að berast.“ Hún segir þann viðskiptahátt að kaupa beint frá bónda eiga upp á pallborðið á Íslandi í dag, líkt og góð aðsókn að bændamörkuðum í sumar sé til vitnis um.„Ég er vissulega að selja kjötið dýrara en ef það væri keypt beint af sláturhúsinu, en við erum líka að selja rekjanleika.“ Fólk kunni því vel að vita af hvaða búi það er að kaupa, ekki hvað síst ef það þekki til ábúenda.
„Svo hefur það líka áhrif að fólk veit að með því að kaupa beint af bóndanum þá er enginn milliliður að hirða hagnaðinn og sauðfjárbændum veitir svo sannarlega ekki af að fá sinn hagnað.“



































