Fær seint fegurðarverðlaun en skiptir sífellt meira máli
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is
Skötuselurinn fær kannski seint fegurðarverðlaun en vinsældir hans hafa aukist frá því sem áður var er honum var iðulega hent fyrir borð. Verðmæti hans skiptir stöðugt meira máli fyrir þjóðarbúið.
Til skamms tíma fékkst skötuselur helst sem meðafli í humartroll í hlýsjónum undan Suðurlandi. Með hlýnun sjávar hefur útbreiðslan aukist mjög og er hann nú veiddur fyrir öllu Suður- og Vesturlandi og var vestursvæðið gjöfult á síðasta ári. Fiskurinn slæðist einnig í veiðarfæri fyrir Norðurlandi.
Skip frá Snæfellsnesi og Vestmannaeyjum hafa verið atkvæðamikil í skötuselsveiðunum. Mestu af honum var í fyrra landað á Rifi, Ólafsvík, Þorlákshöfn, Sandgerði, Arnarstapa og Hornafirði.
Á síðasta ári var heimilt að veiða þrjú þúsund tonn af skötusel og fór aflinn talsvert yfir það. Í ár er hins vegar ekki heimilt að veiða nema 2.500 tonn og er það í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Bein sókn frá aldamótum
Einar Jónsson fiskifræðingur hefur lengi rannsakað skötuselinn og fylgst með útbreiðslu hans hér við land. Hann segir að ekki hafi verið talið ráðlegt að leggja til meiri afla á þessu fisveiðiári en 2.500 tonn. Meðal annars taki ráðgjöfin mið af því að óæskilega stór hluti aflans er tiltölulega smár, ókynþroska skötuselur sem er aðallega afli humarbáta.Hann segir óraunhæft að ætla að stofn skötusels verði mjög stór hér við land og telur æskilegt að sóknin miðist við fyrrnefnd 2.500 tonn, þó svo að uppgangur hafi verið í stofninum við Ísland síðustu árin.
Þegar kvóti var settur á skötusel fiskveiðiárið 2003-2004 var hámarksaflinn 1.500 tonn en afli hér við land fór á síðasta fiskveiðiári yfir þrjú þúsund tonn í fyrsta skipti. Lengi vel var skötuselurinn óvinsæll meðafli og ekki var byrjað að veiða hann í beinni sókn fyrr um síðustu aldamót. Bátar frá Snæfellsnesi veiddu mest af skötusel í fyrra.
Bloggað um fréttina
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Hann Einar hefur lengi rannsakað skötuselinn. -
Níels A. Ársælsson. Skötuselurinn
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. júlí 2009, Innlent Vilja aukinn skötuselskvóta
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Talsvert af skötusel veiðist í grásleppunetin í Húnaflóa
- Föstudagur, 11. júní 2010, Innlent Heimilar auknar veiðar á skötusel
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Leyft en þó ekki ávísun á ofveiði
- Þriðjudagur, 27. apríl 2010, Innlent Margir vilja veiða skötusel gegn sérstöku gjaldi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































