Sjúkdómar vegna reykinga kosta íslenskt samfélag 30 milljarða árlega
Meira en 400 Íslendingar deyja árlega ótímabærum dauða vegna reykinga. Þannig deyja tíu sinnum fleiri vegna reykinga en af slysförum á Íslandi ár hvert, að því er segir í fréttatilkynningu frá Læknafélagi Íslands.
Aðalfundur og stjórn Læknafélags Íslands telja ástandið í þessum málaflokki óviðunandi og félagið hefur því boðað til Tóbaksvarnaþings næsta föstudag.
Í tilkynningu frá Læknafélaginu er talað tæpitungulaust. Þar segir:
„Á Íslandi geisar faraldur vegna reykingatengdra sjúkdóma sem kostar íslenskt samfélag tæpa 30 milljarða á ári, en tekjur ríkisins vegna tóbakssölu eru aðeins 7 milljarðar. Samkvæmt nýjum tölum frá Landspítalanum hafa 80% þeirra sem fara í hjartaþræðingu reykt. Þrír fjórðu þeirra sem liggja á lungnadeild Landspítala reykja eða hafa reykt. Hefur íslenskt samfélag efni á þessu?“
Fram kemur að reykingar séu stærsti heilbrigðisvandi þjóðarinnar. „Þrátt fyrir að skaðsemi reykinga hafi verið þekkt í rúma hálfa öld reykja enn um 20% þjóðarinnar að staðaldri. Tuttugu unglingar ánetjast tóbaki hér á landi í hverri viku. Helmingur þeirra mun látast fyrir aldur fram úr reykingatengdum sjúkdómum eins og hjartasjúkdómum, lungnasjúkdómum og krabbameini.“
Mikilvægasta aðgerðin til að breyta þessu er sögð sú að ungt fólk byrji ekki að reykja og að reykingafólk fái aukna aðstoð til að hætta að reykja.„Þrátt fyrir mörg framfaraskref í tóbaksvörnum er staðreyndin sú að borgarar þessa lands mega reykja á almannafæri og valda með því þeim sem ekki reykja miklum óþægindum.
Komið hefur í ljós að eftir að hætt var að reykja á veitingahúsum og skemmtistöðum á Íslandi hefur bráðum kransæðaþræðingum fækkað um 20% meðal karlmanna sem ekki reykja. Þetta sýnir hvaða árangurs má vænta af því að draga enn frekar úr reykingum.“
Tóbaksvarnarþing Læknafélags Íslands verður næstkomandi föstudag. Þangað verður boðið forsvarsmönnum stjórnmálaflokka, fulltrúum stéttar- og sveitarfélaga, fulltrúum frá skólum og íþróttahreyfingunni, „til að samhæfa aðgerðir til að stöðva þennan faraldur. Þar verður m.a. rædd sú hugmynd að tóbak verði tekið úr almennri sölu á Íslandi sem markviss forvarnaraðgerð,“ segir í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Þórir Kjartansson Þó fyrr hefði verið. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Fækkun lækna í heilbrigðiskerfinu. -
Níels A. Ársælsson. Algjört tóbakssölubann er lausnin -
Jenný Anna Baldursdóttir Farin í smók -
Jón Finnbogason Gott fyrir Svarta markadinn -
Alexander Kristófer Gústafsson Kommunistar plaga læknafélag Íslands -
Hrafn Arnarson Niðurskurður um 30 milljarða og betri heilsa . -
Einar Baldursson Reykingar drepa -
Steinunn Helga Snæland Áráttuhegðun íslenskra "vísindamanna".... -
Sigurjón Sveinsson Fíkniefnalaust Ísland árið 2000 virkaði. Eða ekki. -
Gísli Foster Hjartarson Fangelsi fyrir að reykja!!!!
Innlent »
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
- Veita Hvít-Rússum aðstoð
- Áfallin staða A-deildar í plús
- Er hóflega bjartsýnn
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent „Sker mig í hjartað að sjá unglinga reykja“
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Karlmenn draga úr reykingum
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Reykingar fella fleiri en slys
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?




































