Hvergi hærra útskriftarhlutfall úr háskólanámi
Tvöfalt fleiri konur en karlar útskrifast úr fræðilegu háskólanámi á Íslandi. Á Íslandi er nettó útskriftarhlutfall í háskólanámi það hæsta sem gerist í OECD-löndunum. Nettó útskriftarhlutfall fyrir fyrstu háskólagráðu úr fræðilegu háskólanámi á Íslandi er 63,1% en meðaltal OECD-ríkja er 38,7%.
Fjallað er um þetta í nýju riti OECD, Education at a Glance 2009, OECD Indicators, sem vitnað er til á heimasíðu Hagstofunnar.
Þar kemur fram að nettó útskriftarhlutfall í háskólanámi á Íslandi hefur vaxið úr 33% árið 2000 í 63,1% árið 2007.
Nettó útskriftarhlutfall er fundið þannig að reiknað er hlutfall útskrifaðra eftir aldri af mannfjölda á sama aldri og síðan er hlutfallið lagt saman fyrir alla aldurshópa.
Ástralir og Pólverjar komast næstir Íslendingum að þessu leyti. Í Ástralíu er nettó útskriftarhlutfall 49,8% og 49% í Póllandi. Ef litið er til annarra Norðurlanda má sjá að útskriftarhlutfallið er 48,5% í Finnlandi, 47,3% í Danmörku og 39,9% í Svíþjóð.
Hvergi meiri munur á kynjum
Verulegur munur er milli kynja þegar útskriftarhlutfall er skoðað. Útskriftarhlutfallið á Íslandi er 88,7% hjá konum og 39,5% hjá körlum. Hvergi í OECD-ríkjunum er meiri munur á útskriftarhlutfalli karla og kvenna. Finnar komast næstir Íslendingum í samanburði. Útskriftarhlutfall kvenna í Finnlandi er 61,4% en 36,1% hjá körlum. Meðaltal OECD-ríkja er 30,8% hjá körlum en 46,9% hjá konum.
Fleiri hefja háskólanám en útskrifast með stúdentspróf á Íslandi
Fleiri nýnemar hefja nám á háskólastigi á Íslandi en ljúka stúdentsprófi ár hvert, m.a. vegna erlendra nemenda sem koma til að stunda nám á Íslandi. Ísland hefur eitt hæsta nettó innritunarhlutfall allra OECD-landa í fræðilegt háskólanám, 73%, en meðaltal OECD-landa er 56%. Þegar tekið er tillit til erlendra háskólanemenda er innritunarhlutfall á Íslandi 61%. Nettó innritunarhlutfall er reiknað þannig að fundið er hlutfall nýinnritaðra eftir aldri af mannfjölda á sama aldri og síðan er lagt saman fyrir alla aldurshópa.
Vaxandi fjöldi útlendinga stundar háskólanám á Íslandi
Í skýrslu OECD, Education at a Glance, birtast í fyrsta sinn tölur frá Íslandi um hreyfanlega háskólanemendur, þ.e. nemendur sem fara á milli landa til að stunda nám. Þá eru skiptinemar ekki taldir með þegar upplýsingar um þá liggja fyrir. Hreyfanlegir háskólanemar á Íslandi voru 5,2% allra nemenda á háskóla- og doktorsstigi skólaárið 2006-2007 og 11,9% ef eingöngu doktorsnemar eru skoðaðir. Ef aðeins er litið á erlenda ríkisborgara í háskólanámi á Íslandi eru þeir 4,9% nemenda og 14,4% ef aðeins er litið á doktorsnema. Íslenskir háskólar laða að sér vaxandi fjölda útlendinga og hefur fjöldi erlendra ríkisborgara við háskólanám á Íslandi tæplega tvöfaldast frá skólaárinu 1999-2000.
|
|
Skýrsla OECD - Education at a Glance 2009, OECD Indicators |



































