N1 hafnar áskorun Verkalýðsfélags Akraness
Hermann Guðmundsson forstjóri N1. mbl.is/ÞÖK
N1 hyggst ekki verða við áskorun verkalýðsfélags Akraness þess efnis að greiða starfsfólki sínu þær hækkanir sem ella hefðu komið til ef ASÍ og SA hefðu ekki gengið frá frestun á áður umsömdum launahækkunum. VLFA skoraði á N1 að greiða umsamdar hækkanir í ljósi góðrar afkomu en hagnaður af rekstri N1 fyrstu sex mánuði ársins nam 474 milljónum króna.
Í svarbréfi Hermanns Guðmundssonar, forstjóra N1, sem birt er á heimasíðu VLFA, segir að rétt sé að afkoma N1 á fyrri hluta ársins hafi verið viðunandi. Hins vegar sé mikil óvissa um framhaldið. Þá segir að skuldir N1 hafi hækkað mikið á s.l. einu og hálfu ári eins og hjá öllum fyrirtækjum og heimilum landsins. Fyrirsjáanlegt sé að á næstunni verði það hörð barátta að greiða þær niður þannig að þær komist aftur í fyrra horf.
Forstjóri N1 segir að fyrirtækið hafi ekki lækkað laun hjá almennum starfsmönnum. Þá sé mikilvægast nú að tryggja störf og öfugt við mörg önnur fyrirtæki, hafi N1 bætt við um 60 starfsmönnum það sem af er þessu ári.
Í niðurlagi svarbréfsins segir forstjóri N1 að fyrirtækið muni bæta við laun starfsfólks í samræmi við samkomulag sem gert var þ. 25. júní sl. á milli ASÍ og SA.
Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segist harma afstöðu forsvarsmanna N1. Hann minnir á að greiðslubyrði almenns verkafólks hafi stórhækkað á undanförnum misserum og á þeirri forsendu hefði verið mjög mikilvægt að verkafólk sem starfar á berstrípuðum lágmarkstöxtum hefðu fengið sínar hóflegu launahækkanir sem áttu að taka gildi 1. mars sl.
„Það er því miður grátlegt fyrir almennt verkafólk að verða af upp undir 100 þúsund krónum vegna linkindar samninganefndar ASÍ við endurskoðun kjarasamninga að undanförnu. Það átti klárlega að tryggja að vel stæð fyrirtæki myndu standa við gerða samninga, fyrirtæki sem starfa í útflutningi og fyrirtæki sem hafa möglunarlaust varpað sínum vanda beint út í verðlagið eins og til að mynda olíufélögin,“ segir formaður VLFA.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent N1 greiði umsamdar launahækkanir
- Fimmtudagur, 26. mars 2009, Innlent Þúsund verkamenn hafa fengið launahækkanir
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Staðið verði við gerða samninga
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Vill rifta samkomulagi um frestun samninga
- Fimmtudagur, 14. maí 2009, Innlent Hvetur verkafólk að mótmæla ákvörðun OR
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































