Bótakröfu gegn KPMG vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá bótakröfu Árna B. Sigurðssonar og fyrirtækis í hans eigu á hendur KPMG hf., tveimur fyrrverandi starfsmönnum KPMG og kaupsýslumanninum Robert Melax. Um er að ræða anga af deilumáli, sem reis vegna fyrirhugaðrar viðarkurlsverksmiðju í Króatíu en málið hefur áður komið til kasta dómstóla.
Upphaf málsins er, að Árni leitaði árið 2007 til fyrirtækjasviðs KPMG og sóttist eftir aðstoð við að stofna einkahlutafélag og finna fjárfesta til samstarfs um viðskiptahugmynd sína, rekstur viðarkurlsverksmiðju í Króatíu. Úr varð að hann keypti félagið FS13 af lager hjá fyrirtækinu CF fyrirtækjasölu, sem er í eigu KPMG.
Starfsmenn KPMG fengu Róbert Melax til samstarfs við Árna Sigurðsson og FS13. Fyrst átti Róbert aðkomu í gegnum félagið Still River Overseas, en síðar tók annað félag, Standhóll ehf., við öllum réttindum þess. Standhóli var formlega stjórnað af starfsfólki Kaupþings í Lúxemborg, samkvæmt samningi við Róbert.
Í desember 2007, þegar Árni var staddur í Króatíu og vann að viðskiptaáætlun sinni, héldu tveir starfsmenn KPMG, þeir Ágúst Þórhallsson og Hjörtur J. Hjartar hluthafafund í FS13. Niðurstaða fundarins var sú að þeir tveir skipuðu stjórn félagsins, en Hjörtur væri framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Árni sakaði þá um að reyna að hafa félagið af sér. Málið var kært til lögreglu sem komst að þeirri niðurstöðu að hluthafafundurinn hefði verið ólöglegur og gaf út ákæru. Í febrúar á þessu ári voru Ágúst og Hjörtur fundnir sekir um brot gegn lögum um einkahlutafélög með því að senda vísivitandi ranga tilkynningu til Hlutafélagaskrár.
Árni og FS13 höfðaði skaðabótamál á hendur KPMG, Ágústi og Hirti og Róberti og kröfðust samtals rúmlega milljarðs króna í bætur. Héraðsdómur Reykjavíkur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu í dag, að bótakröfurnar væru allar vanreifaðar og málsástæður sömuleiðis. Var málinu því vísað frá í heild sinni.
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 20. desember 2008, Innlent Ágirntust þeir FS13 ehf.?
- Föstudagur, 20. febrúar 2009, Innlent Reyndu að blekkja Hlutafélagaskrá
- Mánudagur, 22. desember 2008, Innlent Yfirlýsing frá lögmanni FS13 ehf. og Árna B. Sigurðssonar
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Ekki áfellisdómur yfir forsendum OR
- Miðvikudagur, 20. maí 2009, Innlent Gert að greiða fyrrum framkvæmdastjóra árslaun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































