Óvissu um álver á Bakka verður að ljúka

Framsýn bindur vonir við að álver rísi á Bakka á komandi árum. Með því myndi ... stækka

Framsýn bindur vonir við að álver rísi á Bakka á komandi árum. Með því myndi skapast fjöldi starfa á Norðurlandi. Mynd Framsýn

Framsýn - stéttarfélag telur afar mikilvægt að viljayfirlýsing um uppbyggingu álvers á Bakka verði endurnýjuð með það að markmiði að álver rísi sem fyrst á Norðurlandi. Þeirri óvissu sem ríkt hefur um framhald verkefnisins verði að ljúka.

Í ályktun stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar sem samþykkt var í gærkvöld segir að skilaboð stjórnvalda varðandi verkefnið verði að vera skýr þar sem yfirlýsingar ráðherra hafi verið misvísandi og skaðað mjög framvindu málsins. Þegar miklir fjármunir og búsetuskilyrði fólks eru í húfi sé slíkt með öllu óásættanlegt.

„Á þessum tímamótum verður Alcoa einnig að gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu um það hvort þeir ætli sér að byggja upp orkufrekan iðnað á Bakka eða ekki. Þær miklu fjárfestingar sem heimamenn og samstarfsaðilar hafa ráðist í, varðandi öflun á orku til atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum, verða að fara skila tekjum til baka. Menn hafa einfaldlega ekki efni á því að bíða lengur,“ segir í ályktun Framsýnar.

Ennfremur segir að ljóst sé að væntingar heimamanna til verkefnisins séu miklar. Enn á ný, virðist gilda önnur sjónarmið hjá ráðamönnum þjóðarinnar varðandi uppbyggingu atvinnulífs á höfuðborgarsvæðinu en gilda eiga á landsbyggðinni. Slík atvinnustefna brjóti gegn öllum lögmálum um eðlilega og sanngjarna atvinnuuppbygginu í landinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Oddskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »
Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi

Styttist í hrognafrystingu

20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og –frystingu. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Fleetwood Ceyenne 10 fet árg. 2006 EITT MEÐ ÖLLU
Fortjald og markísa ,sólarsella, útvarp og cd með tengi fyrir ipod, svefntjöld b...
Leiga á fellihýsi
Leiga á fellihýsi: Til leigu 10 feta Fleetwood fellihýsi með öllum útilegubúnaði...
Sófasett 3 +2
Fallegt og þægilegt rautt sófasett, 3 + 2. Settið er í góðu ásigkomulagi. Fæst ...
ÞETTA VINSÆLA MODEL
Teg. 107 Þetta vinsæla model komið aftur. Leðurskór, skinnfóðraðir, slitsterkur ...
 
Bifreiðaviðgerðarmaður
Iðnaðarmenn
Bifreiða-viðgerðarmaður Bílaleiga óskar ...
Automation mechanic
Iðnaðarmenn
Nortura SA, one of Norway´s largest food...
Aðalfundur icepro 2012

Aðalfundur ICEPRO 2012 Aðalfundur ICEPR...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012022019 IV/ V H...