Tilgangurinn ekki að höndla með krónur
Magnús Árni Skúlason, sem situr í bankaráði Seðlabankans, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins að tilgangur hans með því að reyna að koma íslenskum fyrirtækjum í aflandsviðskipti með gjaldeyri, hafi ekki verið að höndla með krónur.
Magnús Árni sagðist ekki hafa grafið undan krónunni með þessu móti. Haft var eftir honum, að hann íhugi nú málaferli á hendur Morgunblaðinu fyrir meiðyrði.
Fram kom í Morgunblaðinu í dag, að Magnús Árni hafði samband við stóran hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan viðskiptaaðila (miðlara) með gjaldeyri erlendis. Um var að ræða breska miðlarafyrirtækið Snyder.
Þá kom fram að á fundi fulltrúa Actavis og Snyder, sem Magnús Árni sat, hafi Snyder boðið upp á miðlun og þá þjónustu að kaupa gjaldeyri erlendis inn á reikning, og afhenda krónur hér á landi, sem eru hefðbundin aflandsviðskipti. Tekjugrundvöllur slíks viðskiptasambands séu gjaldeyrishöftin.
Magnús Árni sagði við Ríkisútvarpið, að Snyder hafi viljað eiga gjaldeyrisviðskipti við íslenska banka og viðskipti við þau fyrirtæki sem séu á undanþágulista Seðlabankans. Um hafi verið að ræða beina fjárfestingu í fullu samráð við Seðlabanka Íslands. Einnig viðskipti með austurevrópska gjaldmiðla sem íslensku bankarnir versli ekki með.
Fulltrúar stærstu útflutningsfyrirtækja á Íslandi, m.a. Össurar og Actavis, voru boðaðir á sérstakan fund í Seðlabankanum í sumar. Um var að ræða þau fyrirtæki sem njóta sérstakrar undanþágu frá gjaldeyrishöftunum en það eru fyrirtæki sem eru með yfir 80 prósent af tekjum sínum í erlendri mynt. Var þess farið vinsamlega á leit við þessi fyrirtæki að þau létu af aflandsviðskiptum með gjaldeyri, þó þau væru ekki ólögleg, þar sem þau stríddu gegn markmiðum reglnanna.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Magnús Árni hótar að lögsækja Morgunblaðið -
Vilhjálmur C Bjarnason Leppaflokkur íhaldsins... -
Andri Geir Arinbjarnarson Fékk Magnús þóknun fyrir viðvikið? -
Páll Vilhjálmsson Trúa framsóknarmenn á jólasveininn? -
Guðrún Þóra Hjaltadóttir Hver var tilgangurinn þá ? -
Ólafur Ragnarsson Feill,sárasaklaus feill
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. september 2009, Innlent Gegn markmiðum Seðlabanka
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Áhrifamenn beittu sér
- Föstudagur, 20. ágúst 2010, Innlent Gat ekki sannað gildi samnings
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Meint gjaldeyrissvik rannsökuð
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































