Fimmfaldur munur á álagsgreiðslum

Ú Miðfjarðarrétt. stækka

Ú Miðfjarðarrétt. mbl.is/Rax

„Samtökin töldu vera svigrúm fyrir meiri hækkun ekki síst í ljósi þess að útflutningur hefur verið að skila góðum verðum. Sláturleyfishafar bera sig hinsvegar illa vegna hás vaxtastigs og erfiðrar stöðu efnahagsmála,“ segir Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda á vef samtakanna.

Allir sláturleyfishafar hafa nú birt verð sauðfjárafurða fyrir haustið.  Verðbreytingin frá í fyrra er alls staðar með svipuðum hætti þ.e. útflutningsverð 2008 hækkar upp í innanlandsverð þess árs. Það þýðir að hækkunin er á bilinu 8-10% á milli ára og meðalverð fyrir kindakjöt til bænda verður um 407 kr/kg.  Það er talsvert frá viðmiðunarverði Landssamtökum sauðfjárbænda en þar er meðalverðið 444 kr/kg.

Meðalverð á dilkakjöti á landinu öllu hækkar úr 401 krónu í 438 krónur eða um 9.2%. Hinsvegar lækkar meðalverð á ærkjöti úr 122 krónum í 116 eða um 4.9%. Það þýðir að heildarverðið er að hækka úr 373 krónum í 407 sem er 9.1%.  Ef verðið hefði hækkað upp í viðmiðunarverð LS hefði sú hækkun verið um 19% á milli ára.  Ef engar frekari breytingar verða á verðskrám þýðir þessi niðurstaða því að bændur fá tæpan helming þeirrar hækkunar sem viðmiðunarverðið gerði ráð fyrir.

„Sláturleyfishafar bera sig illa vegna hás vaxtastigs og erfiðrar stöðu efnahagsmála. Því er ekki að neita, en það hefur einnig bitnað illa á bændum og ekkert ber á neinum aðgerðum ríkisstjórnarinnar til aðstoðar heimilunum og fyrirtækjunum í landinu. Atvinnulífinu er smá saman að blæða út á meðan að mörgum vikum var eytt í þvarg um ESB,“ segir formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.

Fimmfaldur munur á álagsgreiðslum 

Verulegur munur er á þeim álagsgreiðslum sem sláturleyfishafar greiða fyrir sauðfjárbændum þessa vikuna en þetta er jafnframt síðasta vikan sem álagsgreiðslur eru í boði. Norðlenska greiðir 7 krónur á hvert kíló kjöts en SAH afurðir, KS og Sláturhús KVH greiða 35 krónur á hvert kíló kjöts eða fimm sinnum hærra álag.

  • Norðlenska - 7 kr/kg.
  • Sláturfélag Suðurlands - 8 kr/kg.
  • Fjallalamb - 15 kr/kg.
  • Sláturfélag Vopnfirðinga - 30 kr/kg.
  • SAH afurðir - 35 kr/kg.
  • KS/Sláturhús KVH - 35 kr/kg.

Að auki greiða KS og Sláturhús KVH sérstakt 200 kr/kg. álag á fituflokka 4 og 5 til 16. október.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
IPAD1 64G, 3G og Wifi
Til sölu IPAD1 64G 3G og Wifi, 1,5 árs en lítið notaður, keyptur hjá Iphone.is. ...
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
Hermannaskyrta
Hermannaskyrta til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...