Ístaksmenn í kappi við ísinn
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Vonast er til að hægt verði að afhenda raforku í desember næstkomandi úr 15 MW vatnsaflsvirkjun sem Ístak hefur verið að reisa á vesturströnd Grænlands síðustu tvö árin.
Er það sex mánuðum á undan áætlun en Ístak var samkvæmt samningi gert að skila verkinu í júní á næsta ári. Samningurinn kvað einnig á um að Ístak myndi sjá um rekstur virkjunarinnar fyrstu fimm árin eftir gangsetningu. Þá hafa verið lagðar háspennulínur á 27 kílómetra langri leið frá virkjuninni til bæjarsins Sisimiut, en þar búa um fimm þúsund manns.
„Það er ekki að ástæðulausu sem við leggjum allt kapp á að ljúka verkinu þetta fyrr. Við viljum losna við þau vandamál sem komu upp síðasta vetur þegar framkvæmdin lá niðri frá jólum og fram í mars vegna vetrarhörkunnar. Allar aðstæður voru þá mjög erfiðar og við viljum klára þetta áður en ísinn frýs aftur og veturinn skellur á,“ segir Guðmundur Þórðarson, verkfræðingur hjá Ístaki í Sisimiut. Í dag starfa hátt í 100 manns við virkjunina, að langmestu leyti eru það íslenskir starfsmenn Ístaks og undirverktaka, en einnig eru þar starfsmenn fyrirtækis frá Slóvakíu, nokkrir Grænlendingar og starfsmenn af öðru þjóðerni. Að jafnaði hafa 50-60 Íslendingar starfað í Sisimiut á síðustu tveimur árum.
Aðeins fært sjóleiðina
Hlutfall Grænlendinga í starfsliðinu hefur verið um 20%. Guðmundur segir erfitt að fá hæfa heimamenn til starfa, hvort sem það eru tækni- eða iðnaðarmenn. Því hafa heimamenn verið í verkamannastörfum og einnig séð um siglingar frá virkjunarstað til Sisimiut. Aðeins er fært sjóleiðina eftir um 23 km löngum firði en Ístak hefur verið með vinnubúðir á virkjunarstað með mötuneyti og 90 manna gistiaðstöðu.Með virkjuninni þurfa heimamenn ekki lengur að reiða sig á olíukyndingu. Núverandi raforkuframleiðsla með dísilrafstöðvum brenndi um 6,5 milljónum lítra af olíu á síðasta ári en að sögn Guðmundar kostar það heimamenn um 670 milljónir króna. Með því að flýta framkvæmdinni um hálft ár mun samfélagið því spara sér um 335 milljónir króna, eða 14 milljónir danskra króna.
Vinnu við vatnsfarveginn að virkjuninni er að ljúka, frá uppistöðulóni í gegnum 5 km löng jarðgöng, lokuvirki, þrýstipípur, stöðvarhús og frárennslisgöng og frárennslisskurð.



































