Mikilvægt að styrkja eftirlit með bótakerfum
„Það er Vinnumálastofnunar að meta framhald málsins. Lagaheimildirnar eru til staðar og þeir hafa forsendur til að meta tilvikin,“ segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra.
Fréttblaðið greindi frá því að 345 háskólastúdentar í lánshæfu námi voru skráðir atvinnulausir á síðasta skólaári og þáðu atvinnuleysisbætur sem þeir áttu ekki rétt á. Þetta kom í ljós þegar nemendaskrár háskólanna voru keyrðar saman við upplýsingar um þá sem þegið hafa atvinnuleysisbætur. Talið er að nemendurnir hafi þegið samtals um það bil 300 milljónir króna úr Atvinnuleysistryggingarsjóði á síðasta ári.
Staða nemendanna gagnvart Atvinnuleysistryggingarsjóði er í skoðun. Í lok ágúst vakti Vinnumálastofnun athygli á að atvinnuleitendum er ekki heimilt að stunda nám samhliða töku atvinnuleysisbóta nema mat ráðgjafa Vinnumálastofnunar liggi fyrir um að heimila slíkt og gerður hafi verið sérstakur námssamningur þar um. Þá var og bent á að Vinnumálastofnun hefur fengið auknar lagaheimildir til samkeyrslu við nemendaskrár framhalds- og háskóla.
Í frétt Vinnumálastofnunar 27. ágúst segir að komi í ljós að þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur séu jafnframt skráðir í skóla án þess að hafa gert námssamning við Vinnumálastofnun, verða þeir krafðir skýringa, teknir af bótum og/eða endurkrafðir um ofgreiddar bætur, eftir atvikum.
Félagsmálaráðherra segir mikilvægt að vel sé haldið utanum bótakerfin.
„Við þurfum að gæta þess að bótakerfin nýtist þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Þetta dæmi sýnir það, eins og önnur dæmi sem við höfum séð, að við þurfum gæta þess að hafa gott eftirlit með bótakerfunum. Ég hef fullan áhuga á því að styrkja það, bæði í almannatryggingunum og atvinnuleysistryggingunum. Þessi samkeyrsla nemendaskráa háskólanna við skrá atvinnuleysistryggingasjóðs er hluti af þeirri styrkingu. Velferðarkerfið virkar ekki nema við höfum gott utanumhald og tryggjum að bæturnar renni til þeirra sem raunverulega þurfa á þeim að halda," segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra.
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Stasieftirlits þörf við innleiðingu ofurjaðarskatts ríkisstjórnarinnar -
Skúli Guðbjarnarson Samræminga er þörf -
Ásgeir Ingvi Jónsson einföldu kerfin -
Hans Miniar Jónsson. Harðara eftirlit getur bitnað á fólki sem þarf hjálp -
Ásdís Sigurðardóttir Erum við virkilega best í að ljúga, svíkja og pretta.??? -
Þórarinn Þ Gíslason HR. ÁRNI PÁLL ÁRNASON FÉLAGS OG TRYGGINGAMÁLRÁÐHERRA, VEIST ÞÚ ! ...
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Samið við ÍSÍ um vinnu ungmenna
- Föstudagur, 10. júlí 2009, Innlent Skera niður sjúkraþjálfun og sameina stofnanir
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Skoða frekari bótasvik námsmanna
- Föstudagur, 15. maí 2009, Innlent Megum ekki blekkja okkur
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Innlent Yfir 50% aukning á atvinnuleysisskrá
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































