Verð á dagvöru hefur hækkað um 17,5% á ári

Sumarútsölum virtist vera lokið í ágúst því þá hækkaði verð á fötum. stækka

Sumarútsölum virtist vera lokið í ágúst því þá hækkaði verð á fötum. mbl.is

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 5,4% á föstu verðlagi í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 11,2% á breytilegu verðlagi.

Þetta er samkvæmt niðurstöðum Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst sem reiknar mánaðarlega út smásöluvísitölu. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í ágúst 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 17,5% á síðastliðnum 12 mánuðum.
 
Sala áfengis minnkaði um 21,2% í ágúst miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 7,1% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi var 35,9% hærra í ágúst síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.
 
Fataverslun var 11,6% minni í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 16,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Í ágúst dróst fataverslun saman um 9% frá mánuðinum á undan á föstu verðlagi. Sumarútsölum virðist hafa vera lokið í ágúst því verð á fötum hækkaði um 6,1% frá mánuðinum á undan.
 
Velta skóverslunar minnkaði um 6,6% í ágúst á föstu verðlagi og jókst um 11,1% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í ágúst um 4,6% á frá mánuðinum á undan.
 
Velta húsgagnaverslana var 47,4% minni í ágúst en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 37,2% minni á breytilegu verðlagi. Í ágúst jókst húsgagnaverslun frá mánuðinum á undan um 16,5% á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum lækkaði í ágúst um 3% frá mánuðinum á undan.
 
Sala á raftækjum í ágúst dróst saman um 20,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og jókst um 11,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna júlí og ágúst jókst raftækjasala  um 42,7% á föstu verðlagi, líklega vegna útsala, að sögn Rannsóknasetursins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Ó.e.Lágmark 4h Íbúðarhúsnæði í 201 Kóp.
Óska eftir að leigja lágmark 4 herb, einbýli, rað, par, fjölbýli allt kemur til ...
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
FUNDARLAUN FYRIR ÞENNANN HÚSBÍL!!!!!!!!!!!!!!!
200 þús. kall fyrir að segja til hvar þennan húsbíl er að finna. nafnaleynd! nú...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...