Lægstu launin hafa hækkað meira

SFR telur í ljósi niðurstöðu nýrrar launakönnunar að huga verði sérstaklega að þeirri kröfu ríkisins ... stækka

SFR telur í ljósi niðurstöðu nýrrar launakönnunar að huga verði sérstaklega að þeirri kröfu ríkisins að lækka heildarlaun þeirra sem eru með yfir 400 þúsund í laun á mánuði.

Meðalgrunnlaun SFR félaga í febrúar 2009 eru 266 þúsund og meðalheildarlaunin 320 þúsund krónur. Grunnlaun félagsmanna hækkuðu að meðaltali um 6% frá fyrra ári og heildarlaunin um 5%. Lægstu laun hækkuðu hlutfallslega mest en launahæstu SFR félagar lækkuðu að meðaltali um 2% frá fyrra ári. Töluvert dregur úr kynbundnum launamun en hann mælist nú 11,8% borið saman við 17,2% í fyrra.

SFR stéttarfélag birtir nú niðurstöður hinnar árlegu launakönnunar SFR sem gerð var í febrúar síðastliðnum. Þetta er þriðja árið í röð sem SFR birtir launakönnun og bera niðurstöðurnar í ár þess merki að það er annað ástand í þjóðfélaginu við gerð þessarar könnunar nú en fyrir ári síðan. Könnun SFR gefur m.a. vísbendingar um það hvernig laun eru að breytast í kreppunni.

Þann 1. maí 2008 hækkuðu laun um krónutölu 20.300 krónur á mánuði.  Þessi hækkun var metin til um 9% að meðaltali. Hækkunin var hlutfallslega meiri hjá þeim sem hafa lægri laun og hlutfallslega minni hjá þeim tekjuhærri. Hinsvegar má draga þá ályktun af þessu að launaþróun á tímabilinu hafi ekki haldið í við samningsbundnar hækkanir.
Launaþróun 2008-2009

Athyglisvert er að sjá að lægstu launin hækka meira á milli ára í prósentum talið en hærri launin. Þetta skýrist m.a. af því að samningsbundin launahækkun á síðasta ári var í formi fastrar krónutöluhækkunar sem kom hlutfallslega betur út fyrir lægri laun.

Einnig má merkja það í könnuninni að um síðustu áramót var þegar farið að skerða laun með ýmsum hætti sem sést m.a. á því að laun 5% launahæstu félagsmannanna lækkuðu að meðaltali um 2% á milli ára, hvort sem litið er á grunn- eða heildarlaun.

Miðað við þessa niðurstöðu telur SFR að huga verði sérstaklega að þeirri kröfu ríkisins að lækka heildarlaun þeirra sem eru með yfir 400 þúsund í laun á mánuði. Það verði að trygga það að laun sama hóps verði ekki lækkuð endurtekið.

Dregur úr kynbundnum launamun

Könnun SFR sýnir að það dregur úr launamun kynjanna frá fyrra ári. Kynbundinn launamunur mælist nú 11,8%, þegar tillit hefur verið tekið til aldurs, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags, starfsstéttar og menntunar. Í fyrra var kynbundni launamunurinn 17,2%. SFR segir launamuninn ennþá allt of mikinn þótt vissulega sé það mjög ánægjulegt að úr honum dragi.

SFR segir að svo virðist sem skýringu á þessu megi finna í þeirri staðreynd að laun karla hafa nánast staðið í stað á milli ára. Þau hafa hækkað að meðaltali um 0,6% en laun kvenna hafa hækkað um 7,4% á sama tíma.

Skýringu á því að laun kvenna hækki á milli ára en laun karla ekki, getur verið að finna í því að konur hafa að jafnaði haft minni launahlunnindi en karlar og grunnlaun taka samningsbundnum hækkunum. Þær hækkanir samningsbundnar launahækkanir hafa bein áhrif á grunnlaun. Að sama skapi kemur fram að dregið hefur úr viðbótarlaunum, sem kemur þá frekar niður á launum karla.

Dregur úr launamun milli ríkis og almenns markaðar

Launakönnun SFR er unnin af Capacent Gallup og í samstarfi við VR.  Þegar laun félagsmanna SFR og VR í sambærilegum störfum eru borin saman kemur fram að launamunurinn á almenna og opinbera markaðnum er nú 15% en hann var 19,7% í fyrra. Við samanburðinn er miðað við heildarlaun og tekið tillit til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs, starfsstéttar og menntunar.

Nánar um launakönnun SFR

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...