Breytingar gerðar á veiðitímabili

Rjúpa við Elliðavatn
Rjúpa við Elliðavatn Ómar Óskarsson

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með nokkuð breyttu sniði frá fyrra ári. Tveimur helgum verður bætt við tímabilið en á móti kemur að veiðihelgar verða styttar úr fjórum dögum í þrjá. Því verða veiðidagar átján eins og í fyrra. Nú verður veiði heimil á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og tímabilið hefst frá og með 27. október og stendur til og með 6. desember.

Sú nýbreytni hefur orðið að nú er gert ráð fyrir að reglugerðin gildi til þriggja ára, nema að óvænt þróun verði í rjúpnastofninum á þeim tíma. Þess vegna er fyrsti veiðidagur í ár ekki fyrr en 30. október þrátt fyrir að veiðitímabilið hefjist 27. okóber samkvæmt reglugerð.

Ákvörðun umhverfisráðherra byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2008, samkvæmt tilkynningu.

Að mati Náttúrufræðistofnunar er fækkun í rjúpnastofninum sem hófst 2005 og 2006 afstaðin og vöxtur í stofninum sem vart varð um austanvert landið í fyrra nær nú til alls landsins. Sóknarskerðing sem ákveðin var haustin 2007 og 2008 kann að hafa haft þessi áhrif að mati stofnunarinnar, en veiðidögum var þá fækkað í átján. Stofnunin lagði því til að sóknargeta yrði ekki aukin umfram átján daga.

Sjá nánar

Veiði á rjúpu er bönnuð á ákveðnum svæðum á suðvesturlandi
Veiði á rjúpu er bönnuð á ákveðnum svæðum á suðvesturlandi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert