Nýttu ekki 4,6% þorskkvótans

mbl.is

Afli íslenskra skipa í botnfiski var 36.623 tonn í ágúst, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Mest var um ýsu í aflanum eða 8.787 tonn og þorskur var 8.149 tonn. Nú þegar fiskveiðiárið er nýliðið er 4,6% af því aflamarki sem til ráðstöfunar er í þorski ónýtt. Aflamarksskip eiga 4% ónýtt og krókaaflamarksskip 7,2%.

Fiskistofa segir þetta áþekkt því sem var við lok fiskveiðiársins 2007/2008 en þá höfðu aflamarksskip ekki nýtt 4,4% af aflamarki í þorski en krókaaflamarksskip hins vegar 5,6%.

Aflamark var einnig vannýtt á síðasta fiskveiðiári í fjölmörgum öðrum kvótategundum. Þannig eru 15,2% ýsukvótans vannýtt, rúm 20% ufsakvótans og 12,7% grálúðukvótans.

Aðrar vannýttar kvótategundir eru meðal annars allar þær flatfisktegundir sem eru kvótabundnar nema úthlutað aflamark í keilu, löngu, steinbít og skötusel var fullnýtt á nýliðnu fiskveiðiári.

Heildaraflamarki í þorskígildum talið fyrir fiskveiðiárið 2008/2009 var 312.914 tonn og voru nýttar aflaheimildir 290.112 tonn. Eru því 22.802 tonn eða 7,3% aflaheimilda vannýtt frá síðasta fiskveiðiári.

Aflamark var nánast fullnýtt í þeim uppsjávartegundum sem bundnar eru við fiskveiðiárið þ.e. loðnu og sumargotssíld.

Rúm 500 tonn ónýtt í strandveiðikerfinu

Strandveiðum er lokið og var aflinn 2.010 tonn í ágúst. Þorskur var meginuppistaðan í aflanum eða 1.642 tonn og ufsi var 264 tonn.

Heildaraflinn í strandveiðunum yfir sumarið var 4.104 tonn og var þorskaflinn 3.396 tonn eða 83% af aflanum. Heildaraflamarkið í þorski í
strandveiðikerfinu var 3.955 tonn og náðist því ekki að nýta 546 tonn.
Nokkur aukning er í öðrum afla utan aflamarks milli fiskveiðiára. Mest var aukningin á svokölluðum VS-afla á nýliðnu fiskveiðiári samanborið við fiskveiðiárið 2007/2008 eða um 28% . Aukning í línuívilnun var um 8% og undirmálsafli var rúmlega 1%.

Nánar um fiskafla síðasta fiskveiðiárs

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Ó.e.Lágmark 4h Íbúðarhúsnæði í 201 Kóp.
Óska eftir að leigja lágmark 4 herb, einbýli, rað, par, fjölbýli allt kemur til ...
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
FUNDARLAUN FYRIR ÞENNANN HÚSBÍL!!!!!!!!!!!!!!!
200 þús. kall fyrir að segja til hvar þennan húsbíl er að finna. nafnaleynd! nú...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...