Forsetahjónin í Bandaríkjaheimsókn
Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Eggert
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands hefur Ólafur RAgnar þegið boð Bills Clintons, fyrrum forseta Bandaríkjanna, að vera málflytjandi í pallborðsumræðum á heimsþingi Clinton stofnunarinnar, Clinton Global Initiative, þar sem fjallað verður um hvernig fjármálamarkaðir geta þjónað almannaheill á heimsvísu.
Einnig muni Ólafur Ragnar sækja aðra fundi þingsins og eiga viðræður við ýmsa þátttakendur þess. Heimsþingið var stofnað af Clinton þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna og sækja það þjóðarleiðtogar, vísindamenn, fjölmiðlafólk, fulltrúar almannasamtaka og áhrifamenn á fleiri sviðum.
Þá þáði Ólafur Ragnar boð Samkeppnisráðsins í Bandaríkjunum, U.S. Council on Competitiveness, um að vera meðal málflytjenda á leiðtogafundi um orkumál, National Energy Summit, sem haldinn er í Washington 23.-24. september. Þar verður fjallað um hvernig nýting hreinna og sjálfbærra orkugjafa getur aukið samkeppnishæfni þjóða. Meðal þátttakenda á leiðtogafundinum verða ýmsir forystumenn úr bandarískum þjóðmálum og viðskiptalífi.
Einnig hefur Ólafur Ragnar þegið boð Louise Blouin stofnunarinnar um að flytja lokaræðuna á alþjóðlegu málþingi um lærdómana sem draga má af fjármálakreppunni og hvernig hægt er að byggja upp hagsæld að nýju á traustan og öruggan hátt.
Ólafur Ragnar mun einnig eiga viðræður við ýmsa þjóðarleiðtoga, sérfræðinga og áhrifafólk í loftslagsmálum. Á morgun, þriðjudaginn mun hann sitja samræðufund með hópi bandarískra hagfræðinga til að fjalla um reynslu Íslendinga, hina alþjóðlegu fjármálakreppu og hvað þurfi að gera til að koma í veg fyrir að svo alvarleg áföll og kreppur endurtaki sig í framtíðinni. Samræðufundurinn er haldinn í boði Josephs Stiglitz, Nóbelsverðlaunahafa, sem nýverið heimsótti Ísland.
Þá mun Dorrit Moussaieff, forsetafrú, sækja málþing um einhverfu og aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur. Málþingið er haldið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og er forsetafrúin meðal skipuleggjenda þess. Hún mun einnig, í boði Rania Jórdaníudrottningar og Wendi Murdoch, sitja umræðukvöldverð um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson Er Ólafur Ragnar með orðuna meðferðis ? -
ErrErrErr Góða ferð forseti -
Bergur Thorberg Er forseti Íslands rétti maðurinn? -
Axel Jóhann Axelsson Ólafur Ragnar kennir öðrum þjóðum -
Reynir Jóhannesson Þurfum nýjan forseta -
Ingólfur H Þorleifsson Veri hann bara sem lengst ! -
Jón Snæbjörnsson Hann ætti að kunna þetta -
Jenný Stefanía Jensdóttir Ekki húmor fyrir þessu.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Ólafi Ragnari boðið til Davos
- Þriðjudagur, 12. janúar 2010, Innlent Ólafur Ragnar á Indlandi
- Sunnudagur, 19. september 2010, Innlent Forsetar ræddu orkumálin
- Þriðjudagur, 7. júlí 2009, Innlent Forseta Litháens boðið til Íslands
- Laugardagur, 30. ágúst 2008, Innlent Ólafur Ragnar í Bangladess
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































