Skýrslur vegna rannsóknar á Q Iceland Finance ekki afhentar
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu þriggja sakborninga í rannsókn embættis sérstaks saksóknara vegna kaupa Q Iceland Finance á hlut í Kaupþingi, um að fá afhent endurrit af skýrslum á hljóð- og mynddiski af öðrum sakborningum og vitnum í málinu.
Hæstiréttur taldi að lagaskylda til að afhenda afrit skjala máls næði einungis til afrita af skjölum í pappírsformi en ekki til eftirgerðar af öðrum gögnum hvort heldur væru hljóð- eða mynddiskar.
Fimm hæstaréttardómarar dæmdu í málunum. Einn þeirra, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sératkvæði og vildi fella úrskurð héraðsdóms úr gildi og veita mönnunum aðgang að gögnunum.
Endurritun hefur dregist
Embætti sérstaks saksóknara rannsakar nú kaup Q Iceland Finance ehf. á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. á árinu 2008. Skýrslur af sakborningum og vitnum í málinu voru teknar upp í hljóði og mynd. Saksóknaraembættið i tók þá ákvörðun að yfirheyrslurnar yrðu endurritaðar orðrétt en endurritun hefur dregist.
Verjendur sakborninganna þriggja óskuðu eftir því í ágúst að fá afhent afrit af öllum rannsóknargögnum málsins sem höfðu bæst við eftir afhendingu rannsóknargagna 2. júlí. Þann 13. ágúst voru gögnin afhent að undanskildum afritum af skýrslum á hljóð- og mynddiskum af sakborningum og vitnum.
Verjendum var boðin aðstaða til að kynna sér upptökur af öðrum yfirheyrslum og taldi saksóknari að með þessu hefði hann uppfyllt skyldu sína samkvæmt lögum. Þá var verjendum tilkynnt að saksóknari hefði í hyggju að afhenda skýrslur af sakborningum og vitnum í endurriti eftir því sem þau yrðu til.
Með bréfi 17. ágúst kröfðust verjendur þess, að héraðsdómur úrskurðaði um skyldu saksóknara til að afhenda sér afrit af skýrslum á hljóð- og mynddiski af öðrum sakborningum og vitnum í málinu. Þessu höfnuðu héraðsdómur og Hæstiréttur.
Fram hefur komið í fréttum Morgunblaðsins af rannsókn málsins, að fyrrum stjórnendur Kaupþings og fyrrum forsvarsmenn félagsins Q Iceland Finance hafa fengið stöðu grunaðra í málinu.
Bloggað um fréttina
-
Bragi Sigurður Guðmundsson Madoff hefði betur átt lögheimili á Íslandi -
Þráinn Jökull Elísson Að teygja lopann. -
Axel Jóhann Axelsson Sýnishorn af því sem koma skal
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 25. maí 2009, Innlent Leitað í sumarhúsi Ólafs
- Föstudagur, 22. maí 2009, Innlent Húsleit gerð á 10 stöðum
- Laugardagur, 23. maí 2009, Innlent Nokkrir grunaðir um auðgunarbrot
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Ekki boðaður til skýrslutöku
- Sunnudagur, 24. maí 2009, Innlent Rannsókn leiði í ljós sakleysi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































