Segir stjórnarmenn njóta fulls stuðnings VR

Kristinn Örn Jóhannesson stækka

Kristinn Örn Jóhannesson mbl.is

Formaður VR, Kristinn Örn Jóhannesson, fagnar því að athugasemdir tveggja stjórnarmanna félagsins við störf fyrrverandi stjórnenda Lífeyrissjóðs verzlunarmanna séu nú komnar í lögformlegan farveg.

Stjórn VR sjái ekki um rannsókn þegar komi að ásökunum um brot fyrrum stjórnar lífeyrissjóðsins gegn samþykktum hans. Formaðurinn segir núverandi fulltrúa VR í stjórn lífeyrissjóðsins njóta fulls stuðnings stjórnar VR. Þetta kemur fram á vef VR.

Stjórnendur lífeyrissjóða bundnir þagnarskyldu

Á vef Fjármálaeftirlitsins kemur fram að þagnarskylda ríki um stjórnendur lífeyrissjóða samkvæmt lögum sem gilda um starfsemi lífeyrissjóða.

Er þar vísað til frétta um að Fjármálaeftirlitið telji að ákvæði laga um bankaleynd hindri ekki stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í að veita stjórnarmönnum í VR upplýsingar sem þeir hafa falast eftir.

„Til útskýringar vill Fjármálaeftirlitið árétta að bankaleynd eins og hún er skilgreind í lögum um fjármálafyrirtæki (58. Gr.-60. Gr.) gildir ekki um lífeyrissjóði heldur eingöngu um fjármálafyrirtæki. Lög nr. 129/1997 gilda hins vegar um starfsemi lífeyrissjóða, en 32. gr. þeirra laga fjallar um þagnarskyldu stjórnenda lífeyrissjóða. Þar segir: „Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn, svo og endurskoðendur lífeyrissjóðs, eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um í starfi og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.“

Eins og fram hefur komið í fréttum RÚV hafa tveir stjórnarmenn í VR lagt fram kæru til Fjármálaeftirlitsins þar sem þeir halda því fram að fyrrum stjórnendur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafi brotið gegn samþykktum sjóðsins og lögum um lífeyrissjóði. Málið kom inn á borð stjórnar VR fyrir nokkrum mánuðum, þar sem það átti alls ekki heima segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR.

„Ég benti stjórnarmönnunum á það strax í upphafi  að þeim bæri að leita til yfirvalda með grunsemdir sínar og ásakanir, stjórn VR væri hvorki rannsóknaraðili né úrskurðaraðili í málefnum lífeyrissjóðsins,” segir á vef VR.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
Upphengi fyrir reiðhjól
Upphengi fyrir 10 reiðhjól á 3 mtra rennibraut. verð kr.37000 Upplýsingar í sím...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...