Segir um misskilning sé að ræða
Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis, segir í yfirlýsingu að fullyrðingar Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um að stjórnendur Glitnis hafi hugsanlega framið lögbrot, er bankinn lagði lítinn hluta lána bankans til sjávarútvegsfyrirtækja að veði fyrir láni hjá Seðlabanka Evrópu,sé á misskilningi byggð.
„Vegna ummæla sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að stjórnendur Glitnis hafi hugsanlega framið lögbrot, er bankinn lagði lítinn hluta lána bankans til sjávarútvegsfyrirtækja að veði fyrir láni hjá Seðlabanka Evrópu, vill undirritaður taka eftirfarandi fram.
Fullyrðing ráðherrans um hugsanlegt lögbrot er á misskilningi byggð. Íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum er heimilt að taka lán beint hjá erlendum aðilum og hafa þau gert það í tugi ára. Norskir bankar hafa í fjöldamörg ár, svo dæmi sé tekið, fjármagnað nýsmíðar íslenskra fiskiskipa í Noregi með fyrsta veðrétti í viðkomandi skipum.
Á sama hátt er íslenskum lánastofnunum heimilt að setja kröfur sínar á hendur íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að veði til tryggingar skuldum sínum við erlenda aðila. Komi til þess að erlendir aðilar þurfi að ganga að veðum í íslenskum fiskiskipum er þeim hinsvegar óheimilt að gera þau út og þurfa að selja þau innan tiltekins tíma.
Ríkisstjórn Íslands hefur á síðustu mánuðum staðið í viðræðum við kröfuhafa um hugsanlegt eignarhald þeirra á íslensku bönkunum. Verði það niðurstaðan að Kaupþing og Íslandsbanki verði að hluta til í eigu erlendra aðila þá verður það löglegt að viðkomandi bankar fjármagni íslenskan sjávarútveg, þrátt fyrir erlent eignarhald á þeim.
Íslensku atvinnulífi er nú mjög mikilvægt að eiga aðgang að erlendu lánsfé. Það er sannfæring mín að þegar sjávarútvegsráðherra hefur kynnt sér málið til hlítar mun renna upp fyrir honum að viðskipti Glitnis við Seðlabanka Evrópu eiga ekkert skylt við lögbrot," að því er segir í yfirlýsingu frá Þorsteini Má Baldvinssyni.
Bloggað um fréttina
-
Guðbjörn Jónsson Voru aflaheimildir veðandlag ?????? -
Níels A. Ársælsson. Ekki um misskilning að ræða hjá ráðherra -
Jón Ingi Cæsarsson Hvor hefur rétt fyrir sér ? -
Axel Jóhann Axelsson Rétt hjá Þorsteini Má -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir LÍÚ á met í þvæluhugtökum og skröksögum -
Andri Geir Arinbjarnarson "Muna hlustendur eftir orðinu: misskilningur" -
Vilhjálmur C Bjarnason Einn stór misskilningur..... -
Guðmundur Ásgeirsson Þorsteinn Már er Georg Bjarnfreðarson -
Jakob Falur Kristinsson Misskilningur
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent Skuldar ECB 180 milljarða
- Miðvikudagur, 9. júní 2010, Innlent Gert að greiða kúlulán
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Baksvið: Þingvallastjórnina þraut örendið
- Sunnudagur, 25. janúar 2009, Innlent Lánin mögulega lögbrot
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Kröfugerð ekki studd rökum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































