Stighækkandi gjald óháð kostnaði
Í lögum um skattlagningu kolvetnisframleiðslu vegna olíu- og gasleitarinnar á Drekasvæðinu er annars vegar lagt á stighækkandi vinnslugjald sem tekur mið af verðmæti þess magns af kolvetni sem nýtt er úr auðlindinni óháð kostnaði vinnsluaðila.
Of íþyngjandi skattar eru önnur af tveimur meginástæðum þess að Sagex Petroleum og Lindir Exploration hafa dregið til baka umsókn sína um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Linda, sagði við mbl.is fyrr í dag, að skattarnir hér væru gríðarlega íþyngjandi.
Í lögunum um skattlagningu kolvetnisframleiðslu vegna olíu- og gasleitarinnar á Drekasvæðinu er annars vegar lagt á stighækkandi vinnslugjald sem tekur mið af verðmæti þess magns af kolvetni sem nýtt er úr auðlindinni óháð kostnaði vinnsluaðila. Ákveðið var að ekkert yrði greitt af fyrstu 10 milljón tunnunum á hverju ári en gjaldhlutfallið hækkaði svo með aukinni vinnslu. Hins vegar er svo lagður á sérstakur kolvetniskattur þegar skattskyldur hagnaður nær 20% af skattskyldum rekstrartekjum í stað vinnslugjaldsins.
Við umfjöllun í þingnefnd komu fram ólík sjónarmið um hvort þetta skattumhverfi væri hagfellt. „Fulltrúi olíufjárfesta sem kom á fund nefndarinnar taldi að vinnslugjaldið væri einkum til þess fallið að draga úr áhuga erlendra olíufélaga vegna þess hvernig það væri uppsett. Gjaldið væri skattur sem reiknaður væri út frá verðmæti framleiðslu en tæki ekki mið af kostnaði eða hagnaði fyrirtækis, sem gæti verið verulega íþyngjandi."
„Fulltrúar ráðuneytisins bentu á að vinnslugjaldið styddist við þau rök að ríkinu, sem eiganda auðlindarinnar, hlotnuðust tekjur af nýtingu hennar óháð því hvort starfsemin væri arðbær," sagði m.a. í nefndaráliti þingsins.
Bloggað um fréttina
-
Einar Guðjónsson Íslenska yfirburðarhugsunin -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Það er okkur fyrir bestu
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. september 2008, Innlent Unnið að gerð frumvarps um skatt á olíufélög
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent 170.000 milljarðar að veði
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Innlent Hættir við olíuleit á Drekasvæðinu
- Mánudagur, 1. mars 2010, Innlent Sérleyfi á Drekasvæði boðin út að nýju
- Föstudagur, 5. júní 2009, Innlent Leyfi veitt til kolvetnisleitar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































