Herjólfur siglir á laugardag

Gert var við veltiugga Herjólfs á Akureyri.
Gert var við veltiugga Herjólfs á Akureyri. Þorgeir Baldursson

Herjólfur er kominn úr slipp á Akureyri og kemur til áætlunarsiglinga klukkan 08:15 laugardaginn 26. september, að því er fram kemur á heimasíðu skipsins. Á Akureyri var meðal annars gert við annan veltiugga Vestmannaeyjaferjunnar.

Breiðafjarðarferjan Baldur hefur annast ferjusiglingar milli lands og Eyja meðan Herjólfur hefur verið til viðgerðar á Akureyri. Baldur má ekki sigla þegar ölduhæð á dufli við Surtsey er yfir 3,5 metra og hafa nokkrar ferðir fallið niður vegna veðurs. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert