Vítisenglar „ekkert án merkjanna“
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„Þessir menn eru eins og rándýr, ferðast í flokkum, en þeir eru ekkert án merkjanna,“ sagði Snorri Magnússon, formaður Landssamtaka lögreglumanna, á málþingi sem félag laganema við Háskóla Íslands, Orator, hélt á dögunum. Snorri er sannfærður um að bann við auðkennismerkjum vélhjólasamtaka muni gera þeim erfiðara fyrir að feta slóð á glæpabraut.
Útlit er fyrir að sjálfstæðri og fullgildri deild Vítisengla (e. Hells Angels) verði komið á fót hér á landi haustið 2010. Lögregluyfirvöld telja að það muni leiða til aukinnar spennu í undirheimum Íslands og hættu á átökum. Því er allra leiða leitað til að hefta framgang samtakanna.
Rótunum ekki náð upp aftur
Sérstakur stýrihópur var settur á fót í október á síðasta ári og hefur það verkefni að reyna að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi – sérstaklega vélhjólagengjum. Meðal annars hefur verið litið til reynslu annarra landa.„Þar sem [Vítisenglar] hafa skotið rótum hefur ekki tekist að ná þeim upp aftur,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum. „Og samtökin hafa skapað gríðarleg vandamál í samfélögum.“
Ein þeirra hugmynda sem skotið hafa upp kollinum er að leggja bann við auðkennismerkjum vélhjólasamtaka. Það var reynt í Kanada og gafst ágætlega til að byrja með. Hafi kanadísk lögregla afskipti af merktum vélhjólamönnum leiðir það til hárrar sektar fyrir hinn merkta.
Snorri segir Vítisengla og önnur slík samtök lifa á ótta almennings við þau. Hann tekur sem dæmi að meðlimir Fáfnis hafi einhverjir verið dæmdir fyrir ofbeldisglæpi. Það geti hins vegar breyst á næstu árum. „Enginn þorir að segja til manna sem tilheyra svo alræmdum hópi og eiga í kjölfarið yfir höfði sér hefnd.“
Bloggað um fréttina
-
Freyr Hólm Ketilsson Ef félagasamtök skaða land og þjóð ber að banna það ... -
Haugurinn bloggar Er ekki að sjá þetta virka -
Guðbergur Egill Eyjólfsson Getuleysi þjóðskipulagsins -
Birgir Scheving Þetta veldur vandræðum
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. desember 2009, Innlent Vítisenglunum mun verða vísað frá
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Álagsgreiðslur slegnar af
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Innlent Margir glæpahópar hér
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Kjaradeila lögreglumanna og ríkis í járnum
- Þriðjudagur, 14. apríl 2009, Innlent Býður sjálfstæðismenn velkomna
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































