Óstöðugleiki dregur úr samkeppnishæfni
mbl.is
Eftir Jón Pétur Jónsson - jonpetur@mbl.isÞað eru einkum þrír þættir sem eru þess valdandi að Ísland fellur í ár um sex sæti yfir samkeppnishæfustu ríki heims miðað við árið 2008. Á Íslandi er lítill efnahagslegur stöðugleiki, fjármálamarkaðurinn vanþróaður og markaðurinn lítill.
Irene Mia, hagfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Alþjóðaefnahagsráðinu, bendir á að í fyrra hafi Ísland verið í sjötta sæti, af 134 hagkerfum, hvað varðar efnahagslegan stöðugleika. Nú er Ísland í 119. sæti af 133. hagkerfum, sem sé bein afleiðing bankahrunsins.
Hvað varðar þróun fjármálamarkaðarins hér á landi þá hafi Ísland verið í 20. sæti í fyrra, en sé nú í 85. sæti.
Hvað varðar gæði íslenska bankakerfisins þá var Ísland í 36. sæti í fyrra, en er nú nánast á botninum í 130. sæti.
Hún tekur fram að lítið sé hægt að gera hvað varðar stærð markaðarins hérlendis, en hægt sé að koma á stöðugleika og þróa fjármálakerfið.
Mia fjallaði um samkeppnishæfni Íslands út frá samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins á morgunfundi undir yfirskriftinni: „Endurreisn: Sóknarfæri og samkeppnishæfni“.
Mia, sem er einn skýrsluhöfunda The Global Competitiveness Report 2009-2010, tekur hins vegar fram að Ísland standi sig vel á mörgum sviðum, og nefndi hún heilbrigðismál, menntamál, innviði samfélagins og íslenskt hugvit sem dæmi. Þar væru Íslendingar á meðal fremstu þjóða. Mia benti jafnframt á að Ísland ætti að einbeita sér að efla íslenskt hugvit, því þar séu sóknartækifæri landsins.
Sviss er nú í efsta sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heimsins, samkvæmt mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum, WEF) í Genf. Ísland fellur um sex sæti yfir samkeppnishæfni þjóða, úr 20. sæti í 26. sæti, og er neðst Norðurlandaþjóðanna fimm.
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. október 2008, Innlent Ísland hækkar á lista um samkeppnishæfni þjóða
- Föstudagur, 25. september 2009, Innlent Ísland verði eitt af samkeppnishæfustu ríkjum heims
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Minni samkeppnishæfni Íslands
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent Kynjabilið minnst á Íslandi
- Þriðjudagur, 21. apríl 2009, Innlent Færri konur á framboðslistum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































