Vill ráða eldra fólk til starfa
Jón Gerald Sullenbergir stefnir að opnun nýrrar lágvöruverðsverslunar sinnar í október. Hann auglýsir eftir starfsfólki í sunnudagsblaði Morgunblaðsins og segist gjarnan vilja ráða eldra fólk til starfa.
Jón Gerald er búinn að ákveða opnunardaginn en er ekki reiðubúinn að upplýsa hann á þessari stundu. „Það verður einhvern tímann í október,“ sagði Jón Gerald. „Framkvæmdir ganga mjög vel.“
Komið hefur fram að lágvöruverðsverslunin verði til húsa að Dalvegi 10 í Kópavogi, í næsta nágrenni við Kauptorg, Turninn, Smáralind og Lindir.
Um leið og tilkynnt verður um opnunardag verður svipt hulunni af nafni verslunarinnar. Hingað til hefur verið notast við vinnuheitið Smartkaup. „Það er komið nafn á búðina og það verður alíslenskt nafn. Nafn sem allir Íslendingar eiga geta orðið sáttir við,“ sagði Jón Gerald. Í sumar var efnt til hugmyndasamkeppni um nafn á verslunina.
Jón var spurður hvort lágvöruverðsverslun hans verði á einhvern hátt frábrugðin öðrum slíkum verslunum á Íslandi. „Já, við vonum það. Það eru aðrir eigendur!“ Jón taldi að þetta verði fyrsta skipti í ein 20 ár sem er opnuð ný lágvöruverðsverslun á Íslandi sem stendur fyrir utan verslanakeðjurnar sem fyrir eru. Fyrir eru Kaupás, Samkaup, Nettó og Hagar.
Í atvinnuauglýsingunni í Morgunblaðinu í dag er m.a. sagt að verslunin óski eftir að ráða „hressa“ eldri borgara. Jón Gerald sagði að þar væri m.a. átt við fólk sem komið er á eftirlaun en vill vinna lengur. „Ég skora á eldri borgara að taka þátt í þessu með okkur. Við erum ein stór fjölskylda sem vinnur saman. Við höfum neytandann að leiðarljósi og okkar yfirmann.“
Jón Gerald sagði að hann ætli að vera mikið í búðinni sjálfur. Verslunarstjóri verður Ólafur Már Ólafsson.
Bloggað um fréttina
-
Stefán Friðrik Stefánsson Jákvæð samkeppni á matvörumarkaði -
Guðmundur Júlíusson Jón Gerald Sullenberger opnar nýja lágvöruverslun í október -
Sturla Snorrason Ný þungamiðja höfuðborgarinnar? -
Þórarinn Þ Gíslason LOKSINS KJARARBÓT OG SEM UM MUNAR,ÞAÐ GAT EKKI ANNAÐ SKEÐ ... -
Magnús B Jóhannesson Aukin samkeppni á fákeppnismarkaði
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent „Neytendur okkar yfirmenn“
- Laugardagur, 24. október 2009, Innlent Kostur opnar senn á Dalvegi
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Leitar að húsi fyrir nýjan Kost
- Miðvikudagur, 17. júní 2009, Innlent Samkeppni um nafn á nýrri lágverðsverslun
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































