Össur ávarpaði allsherjarþing SÞ

Össur Skarphedinsson flytur ræðu sína á allsherjarþingi SÞ. stækka

Össur Skarphedinsson flytur ræðu sína á allsherjarþingi SÞ. Reuters

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi og gagnrýndi m.a. að tafir hefðu orðið á framgangi efnahagsáætlunar Íslendinga og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna tvíhliða deilna um óskyld mál. Vísaði hann þar með til Icesave-deilunnar. 

Hann fjallaði m.a. um fjármálakreppuna og áhrif hennar á Ísland og sagði að um þessa helgi væri ár liðið frá því fárviðri fjármálakreppunnar tók land á Íslandi. Það hafi nánast fellt allt íslenska fjármálakerfið og leitt til mesta efnahagshruns í manna minnum. 

„Við vorum fyrsta landið, sem varð fórnarlamb græðgi og óhófs  fjármálamanna, sem misnotuðu reglur, fylgdu vafasömum starfssiðum, földu fé sitt í skattaskjólum og komu á ábyrgðarlausu bónusakerfi sem hvatti til ófyrirleitnari áhættusækni og hegðunar en áður hefur sést," sagði Össur. 

Hann sagði, að á Íslandi hefðu þessir menn skilið eftir sig sviðna jörð og ringlaða íbúa fulla af sorg og reiði, sem áttu skyndilega yfir höfði sér gjaldþrot og missi húsa sinna og atvinnu.

„Ísland er hins vegar að vinna sig út úr vandanum, vegna þess að þar hefur fólk lagt mikið á sig og einnig vegna þess að Íslendingar hafa notið stuðnings. Norræna fjölskyldan okkar yfirgaf okkur ekki. Eystrasaltslöndin veittu okkur siðferðilegan stuðning. Og Pólland, af örlæti sínu,  veitti okkur óumbeðið hjálparhönd og því munum við aldrei gleyma. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bauð okkur efnahagsáætlun, sem hefur gengið eftir í stórum dráttum en ég verð að nota þetta tækifæri til að lýsa mikilli óánægju Íslendinga með, að óskyldar tvíhliða deilur hafi komið í veg fyrir að hægt sé að framfylgja áætluninni að fullu," sagði Össur. 

Hann sagði einnig að umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu hefði verið vel tekið.  „Ég tel mig því geta staðið hér og sagt, að fjármálaóveðrinu er að byrja að slota. Það má þakka þolægði og dugnaði íslensku þjóðarinnar og einnig því að þið, alþjóðasamfélgaið, hefur veitt okkur mikilvægan stuðning. Það er ef til vill  punctum saliens. Í akþjóðavæddum heimi verðum við að fást við vandamálin saman. Við verðum að berjast saman gegn spillingunni, sem stuðlaði að þessari alþjóðlegu kreppu; til að tryggja að fjármálabarónarnir fái ekki aftur að braska með líf fólks; að þurrka út skattaskjólin sem þeir notuðu og við verðum að taka saman höndum og skapa alþjóðlegt eftirlitskerfi," sagði Össur. 

Ræða Össurar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Góð dekk og nýlegir bremsuklossar. Akstur 26....
Touareg árg.2005
VW v:2,29 mkr, glæsilegur bíll v8 bein innspýtingu sjálfsk. e105 þkm. ný dekk, S...
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
Nú er vor í lofti og allir ættu að nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir Alþrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á s...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...