Samtök iðnaðarins gagnrýna vinnubrögð stjórnvalda harðlega
Stjórn Samtaka iðnaðarins gagnrýnir enn harðlega vinnubrögð stjórnvalda og segir að togstreitan innan ríkisstjórnarinnar um erlenda fjárfesta og beislun og nýtingu orkuauðlinda til uppbyggingar atvinnustarfsemi sé á góðri leið með að valda þjóðinni miklum búsifjum.
Þá varar stjórn SI við hugmyndum um orku-, umhverfis- og auðlindaskatta og skorar á ríkisstjórnina að leggja sitt af mörkum til þess að laða að erlendar fjárfestingar á öllum sviðum og þar með taldar þær sem leiða til hagnýtingar orkuauðlinda landsins.
Í fréttatilkynningu frá SI segir orðrétt m.a.:
"Enn kristallast þessi togstreita í skilaboðum og ákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Búið er að ákveða að framlengja ekki viljayfirlýsingu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Bakka og tengdar virkjanir. Engar haldbærar skýringar eru á þessari stefnubreytingu. Unnið hefur verið innan ramma yfirlýsingarinnar af fullum krafti og í nánu samráði við ríkisstjórnir á hverjum tíma. Nú skal hins vegar snúið við blaðinu í þeim tilgangi að gefa öðrum kost á nýta orkuna. Staðreyndin er sú að það eru engir aðrir sem hafa í neinni alvöru sett fram raunhæfar hugmyndir um nýtingu orkunnar. Hugmyndir þar sem vilji og geta til framkvæmda fylgja máli. Eini fjárfestirinn sem það hefur gert er Alcoa, fjárfestir sem hefur þegar sýnt og sannað að hann hefur getu og vilja til framkvæmda.
Það er ekki einleikið hvernig skoðanaágreiningur innan ríkisstjórnarinnar ætlar að spilla þessu máli og því miður trúlega öðrum þar sem erlendir fjárfestar og beislun og nýting orkuauðlinda kemur við sögu. Hætt er við að hér stefni í mikið óefni sem mun vinda upp á sig og spilla fyrir því að erlendir fjárfestar líti á Ísland sem heppilegan stað til þess að byggja upp atvinnustarfsemi."
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Iðnaðarráðherra snýr sér að "öðru" -
Magnús Helgi Björgvinsson Menn eru kannski að gleyma einu atriði þegar þeir deila ... -
Jóhann Pétur Pétursson Íslenska þjóðin hefur ekki efni né áhuga á prinsipp málum ... -
Guðni Karl Harðarson Úpps.............
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Gagnrýna stjórnvöld harðlega
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Segja vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Gagnrýna félagsmálaráðherra
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Gera alvarlegar athugasemdir við skattabreytingar
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent SI: Markvisst unnið gegn áliðnaði
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































