ESB-gögn verði birt á íslensku

Reuters

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að sjá til þess að allar upplýsingar og öll gögn er varða umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði birt opinberlega á íslensku, þjóðtungu landsins.

Þannig verði  tryggt að allir hafi möguleika á að kynna sér þau gögn er umsóknina varða, óháð tungumálakunnáttu, segir jafnframt í áskoruninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert