Icelandair eykur tíðni áætlunarflugs um 10%
Icelandair hefur ákveðið að auka áætlunarflug sitt á næsta ári um allt að 10% og gera stórátak í því að fjölga ferðamönnum til landsins. Icelandair flýgur til Íslands frá 26 borgum í Evrópu og Norður-Ameríku og mun á næsta sumri fjölga vikulegum ferðum úr 140 í alls 155 flug á viku eða 23 flug daglega á háannatímanum, að því er fram kemur í tilkynningu.
Sala farseðla samkvæmt þessari nýju og auknu áætlun hófst nú fyrir helgi.
Icelandair bætir einni Boeing 757 farþegaþotu í áætlunarflugflotann og verður með 12 þotur í rekstri næsta sumar.
„Við ætlum einfaldlega að grípa það tækifæri sem við sjáum nú til að auka sölu Íslandsferða með arðbærum hætti. Við teljum að mikil umfjöllun um landið erlendis undanfarið og lágt gengi krónunnar skapi aukna sölumöguleika á ýmsum mörkuðum. Nú er komin á sú reynsla hjá fagaðilum erlendis og almenningi að þjónusta á Íslandi er góð þó samdráttur sé í efnahagslífinu og Ísland er jafn áhugaverður staður og verið hefur - jafnvel ennþá áhugaverðari. Við teljum rétt að nýta með þessum hætti þann styrk og sveigjanleika sem felst í því að reka öflugt markaðsstarf bæði hér heima og á mörkuðum okkar erlendis, og herðum enn róðurinn ytra", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í fréttatilkynningu.
Telja að þetta skili 20-25 þúsund nýjum ferðamönnum
Icelandair gerir ráð fyrir því að aukningin í framboði félagsins fjölgi ferðamönnum Icelandair til landsins um 20-25 þúsund og að þeir muni koma með sem svarar sex milljörðum króna í erlendum gjaldeyri til kaupa á vöru og þjónustu.
Þá mun þessi viðbót skapa um 100 bein störf í flugi og flugþjónustu félagsins og auk þess má gera ráð fyrir að yfir þrjú hundruð störf verði til í almennri ferðaþjónustu um landið til að sinna þessum fjölda ferðamanna. "Við ákvörðun um þessa aukningu horfum við auðvitað fyrst og fremst til arðsemi Icelandair, en það er vissulega gleðilegt að aukin sala erlendis hefur mikil áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi. Þetta er gríðarlega atvinnuskapandi grein og mikilvægt að stjórnvöld og raunar allur almenningur styðji við hana", segir Birkir Hólm.
Innlent »
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Icelandair flýgur til Hamborgar næsta sumar
- Miðvikudagur, 24. júní 2009, Innlent 32 flugmönnum verður sagt upp
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Icelandair eykur flugframboð
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Innlent Icelandair flýgur til Alicante
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Icelandair til Þrándheims
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































