Umdæmin verða færri en stærri og sterkari
Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is
Ljóst er að skipan lögreglu- og sýslumannsumdæma mun taka miklum breytingum til að mæta yfirvofandi niðurskurði og hagræðingu í stjórnsýslunni. Munu umdæmin verða færri og stærri en hingað til.
Ekki liggur fyrir ennþá hve mikil fækkunin verður en Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur fallist á tillögur starfshóps um að fækka lögregluumdæmum úr fimmtán í sex. Þá voru hugmyndir um að sýslumannsumdæmi á landinu yrðu sjö í stað 24 kynntar á aðalfundi Sýslumannafélags Íslands á fimmtudaginn.
Breytingar á skipan lögregluumdæma eru nú undirbúnar af sérstökum starfshópi á vegum ráðherra og er vinna við frumvarp til laga þar að lútandi hafin. Fallist Alþingi á tillögur ráðherra er gert ráð fyrir að breytingarnar taki gildi um næstu áramót. Stækkun lögregluumdæma er talin munu styrkja embættin og til umræðu er að verkefni miðlægrar þjónustu ríkislögreglustjóra verði færð á þeirra hendur.
Hugmyndir um stækkun sýslumannsembætta eru þó skemur á veg komnar og er vinnan á frumstigi. Á næstunni verður skipuð verkefnisstjórn sem mun meta stöðuna og gera tillögur um nánari útfærslur breytinganna.
„Markmiðið með stækkun sýslumannsembætta er að gera embættin að sterkari rekstrareiningum þannig að þau verði í stakk búin til að mæta hagræðingarkröfu en um leið veita fjölbreytta þjónustu,“ segir Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri í ráðuneyti dóms- og kirkjumála.
Hún segir að þó embættum fækki sé ætlunin að þau hafi útibú víða um land, líklegast á þeim stöðum þar sem sýslumannsembættin eru nú og jafnvel víðar. Ekki stendur til að skerða þjónustu embættanna en nánari útfærsla á því er undir fjárveitingum komin.
„Við stefnum að því að halda fækkun starfsmanna í lágmarki, við erum mjög meðvituð um að sýslumannsembættin búa yfir mikilvægri reynslu og þekkingu,“ segir Þórunn. Í stað þess að segja fólki upp störfum verður leitast við að færa starfsmenn til innan stjórnsýslunnar og halda þannig í þann styrk sem í mannauðnum býr.
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Fimmtudagur, 9. júlí 2009, Innlent Skipulagsbreytingar hjá Eimskip
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Sunnudagur, 13. desember 2009, Innlent Breytingum á sýslumannsembættum frestað til vors
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































