Tekið tillit til vilja barnanna
Hæstiréttur hefur dæmt að kona þurfi ekki að senda tvö börn sín til Noregs þar sem faðir barnanna býr en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að annarri niðurstöðu og úrskurðað að börnin skyldu send til Noregs.
Konan og maðurinn bjuggu í Noregi en skildu 2003. Konan ákvað að flytja til Íslands 2006. Þau fara með sameiginlega forsjá barnanna, sem nú eru 9 og 12 ára, en gerðu samkomulag um umgengnina, fyrst árið 2006 og síðan árið 2008 um að börnin skyldu vera hjá móðurinni á Íslandi þar til skólaárinu lyki í vor en flytja eftir það til Noregs og ljúka skólagöngu sinni þar.
Konan sendi hins vegar börnin ekki til Noregs í sumar og krafðist maðurinn þess þá, að hann fengi þau afhent með beinni aðfarargerð. Á þetta féllst héraðsdómur.
Eftir að dómurinn kvað upp úrskurð sinn var dómkvaddur matsmaður til þess að meta vilja barnanna og kom fram að þau vildu bæði vera áfram hjá móður sinni á Íslandi.
Í dómi Hæstaréttar segir, að ástæðurnar fyrir afstöðu barnanna séu þess háttar að enginn vafi leiki á að þær gætu haft áhrif á daglega líðan þeirra. Þá leiki heldur ekki vafi á því að börnin hefðu öðlast nægilegan þroska til að rétt sé að taka tillit til skoðana þeirra. Hafnaði Hæstiréttur því kröfu föðurins.
Hæstiréttur segir að samkvæmt lögum um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. sé gert ráð fyrir að vilji barns skipti máli þegar tekin sé afstaða til beiðni um afhendingu þess. Því hefði átt að kanna afstöðu barnanna áður en héraðsdómur tók ákvörðun í málinu.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Með tæp 40 grömm af amfetamíni
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Innlent Nálgunarbann staðfest
- Miðvikudagur, 24. september 2008, Innlent Bjuggu við ofbeldi föður síns í rúm þrjú ár
- Mánudagur, 22. desember 2008, Innlent Hafði glímt við erfðasjúkdóminn frá fæðingu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































