Á vinsamlegum nótum
Fánar 46 aðildarríkja blakta utan við byggingu Evrópuráðsins í Strassborg. mbl.is/GSH
„Fundurinn fór fram á vinsamlegum nótum. Við útskýrðum sjónarmið okkar og áhrif þessara skuldbindinga á landið,“ segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, um fund þriggja íslenskra þingmanna með breskum og hollenskum þingmönnum í Strassborg í gær þar sem Icesave-málið var til umræðu.
Auk Birkis Jóns sátu Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, fundinn en þau sóttu öll fund Evrópuráðsþingsins í Strassborg.
„Þetta var mjög gagnlegur fundur og við ákváðum að næst þegar verður fundað í Evrópuráðsþinginu, munum við hittast aftur og fara yfir stöðuna hver sem hún verður þá,“ segir Birkir Jón.
Að sögn hans var einnig rætt um Evrópusambandsmál á fundinum en spurður hvort bresku og hollensku þingmennirnir tengdu lausn Icesave-málsins og aðildarumsókn Íslands að ESB saman sagði hann: „Við komum því mjög skýrt til skila að við litum svo á að þessi mál væru aðskilin og þeir fengu þau skilaboð mjög skýrt frá okkur þingmönnunum.“
Hann bendir á að bresku og hollensku þingmennirnir hafi ekki verið í neinum grundvallaratriðum inn í Icesave-málinu. „Við settum þá inn í stöðuna og hvaða þjóðhagslegu áhrif þessir samningar gætu haft. Þetta voru aðallega skilaboð frá okkur til þeirra, sem þeir sögðust myndu flytja til sinna kollega.“
Birkir Jón sagði að framsóknarmenn hefðu gagnrýnt mjög á seinustu mánuðum samskiptaleysi stjórnvalda við aðrar þjóðir. „Við þurfum að kynna málstað okkar með miklu betri hætti en verið hefur, enda tel ég málstaðinn vera góðan,“ segir hann.
Birkir Jón segist hafa miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin á stjórnarheimilinu í kringum Icesave-málið. „Ég held að menn þurfi að setjast niður og ræða málin því það hefur aldrei verið eins mikilvægt í sögu lýðveldisins að á svona tímum væri við völd traust og stöðug ríkisstjórn. Þegar ég segi að menn eigi að ræða saman, þá held ég að menn eigi að byrja á því í þessum tveimur flokkum og í framhaldinu verði aðrir að koma að því. Þetta ástand er ekki þjóðinni bjóðandi,“ segir Birkir Jón.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent „Þá eruð þið bara vandamál fyrir framkvæmdastjórnina“
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Aukinn skilningur á stöðu mála á Íslandi
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 7. apríl 2009, Innlent Ekkert kurteisishjal
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































