Brotist inn í ÁTVR

Brotist var inn í verslun ÁTVR við Stekkjarbakka í nótt og áfengi stolið en ekki er ljóst hve miklu. Einn maður sést í öryggismyndavél; hann braut rúðu í útidyrum með gangstéttarhellu og komst þannig inn. Lögreglu barst tilkynning um innbrotið frá Öryggismiðstöðinni klukkan hálf eitt í nótt.

Maðurinn hefur ekki fundist. Lögreglumenn sem fóru á vettvang þekktu manninn ekki af upptöku úr öryggismyndavél.

Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert