Segja úrskurð ekki standast lög

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. stækka

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Eggert Jóhannesson

Úrskurður umhverfisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki verði sameiginlegt umhverfismat vegna Suðvesturlínu og tengdra lína, stenst ekki lög að því er fram kemur á vef Samtaka atvinnulífsins.

Í fréttum í gær var haft eftir umhverfisráðherra að einungis væri verið að framfylgja lögum og viðhafa góða stjórnsýslu með því að fela Skipulagsstofnun að úrskurða að nýju um hvort fram skuli fara sameiginlegt umhverfismat á suðvesturlínu og tengdum virkjunum og öðrum framkvæmdum.

„Ekkert er fjær lagi. Þvert á móti er úrskurður ráðherra ekki samkvæmt lögum og virðist vart geta haft neina þýðingu því Skipulagsstofnun hefur þegar gefið út álit sitt um mat á umhverfisáhrifum suðvesturlínu," að því er segir á vef SA.

Tók þremur mánuðum lengri tíma heldur en löglegt er

Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er kærufrestur einn mánuður vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum línulagnarinnar og tengdum framkvæmdum. Úrskurður stofnunarinnar gekk 25. mars og kærufrestur því til 25. apríl. Samkvæmt lögunum hefur umhverfisráðherra síðan tvo mánuði til að kveða upp úr um gildi kærunnar. Þannig átti úrskurður ráðuneytisins lögum samkvæmt að liggja fyrir í lok júní. Það gerðist ekki, að því er segir á vef SA.

„Umhverfisráðherra tók rúmum þremur mánuðum lengri tíma til þess að kveða upp úrskurð en áskilið er í lögum um mat á umhverfisáhrifum (nr. 106/2000).

Þann 17. september sl. gaf Skipulagsstofnun út álit sitt á mati á umhverfisáhrifum suðvesturlínu. Þar kemur fram að matsskýrsla framkvæmdaaðila uppfylli skilyrði laga en að rétt sé leyfisveitendum að setja tiltekin skilyrði fyrir framkvæmdum til þess að draga úr meintum neikvæðum áhrifum þeirra.

Þegar Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sitt er ekkert í vegi fyrir því að hefja framkvæmdir að fengnum leyfum sveitarfélaga og annarra sem leyfi kunna að þurfa að veita. Álit Skipulagsstofnunar er samkvæmt lögum endanlegt og engar heimildir til þess að endurskoða álitið að því gefnu að framkvæmdir hefjist innan 10 ára frá því álitið kom fram.

Þannig virðist blasa við að úrskurður umhverfisráðherra sé dæmi um stjórnsýslu sem ekki virðir tímamörk sem bundin eru í lögum. Ekkert í lögunum heimilar Skipulagsstofnun að taka upp álit sitt á mati á umhverfisáhrifum og sjálfsagt virðist að framkvæmdaaðilar haldi sínu striki óháð þessum úrskurði ráðherra sem er til þess fallinn að tefja, skapa óvissu og um leið spilla fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs.

Það er óviðunandi að fyrirtæki sem undirbúa framkvæmdir, og fara í einu og öllu að lögum, skuli verða fyrir því að ráðherra skuli breyta skilyrðum eftir á og tefla þannig í tvísýnu öllum undirbúningi framkvæmda og valda með ákvörðunum sínum ómældum kostnaði," að því er segir á vef SA.

PDF-skrá Fréttatilkynning frá umhverfisráðherra
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
Terrano II 2,7 TD '96 varahlutir
Hef til sölu ýmsa varhluti í Terrano II 96 2,7 TD vél, dekk, ljós, boddy hlut...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...