SMS-skilaboð skila árangri

Tjaldvagn
Tjaldvagn mbl.is/Sverrir

Tilraunir með svokölluð SMS-skilaboð í farsíma þeirra eigenda ökutækja sem ekki hafa fært þau til skoðunar á réttum tíma, hafa tekist vel að sögn Jónasar Guðmundssonar sýslumanns í Bolungarvík. Síminn hringdi látlaust fyrst eftir að skilaboðin voru send og ýttu þau við mörgum eigandanum. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta í dag. 

Um var að ræða eigendur fornbifreiða, húsbifreiða og bifhjóla. Frestur til að færa þessi ökutæki til skoðunar rann út 1. ágúst síðastliðinn og í dag rennur út frestur til að losna við 15 þúsund króna vanrækslugjald.

„Ennþá eru þó 4457 ökutæki af þessari gerð óskoðuð sem er alltof mikið,“ segir Jónas, í samtali við BB.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert