Stefnt að sölu á 45 þúsund bleikum slaufum

Bleika slaufan 2009
Bleika slaufan 2009

Bleika slaufan, söfnunar‐ og árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega á morgun og hefur félagið sett sér það markmið að selja 45 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur.

Þetta er jafnframt í tíunda sinn sem bleika slaufan er seld hérlendis. Allur ágóði af sölu bleiku slaufunnar fer að þessu sinni til leitarstarfs Krabbameinsfélagsins.

Slaufan í ár er hönnuð af Sif Jakobs og veitti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fyrstu slaufunni viðtöku í dag, samkvæmt tilkynningu.

,,Sala á bleiku slaufunni gekk einstaklega vel í fyrra þrátt fyrir efnahagshrunið. Þá seldum við ríflega 40 þúsund slaufur sem gerði okkur kleift að ljúka greiðslu á nýjum, stafrænum leitarbúnaði fyrir Leitarstöðina og færa alla skráningu yfir á rafrænt form. Í ár ætlum við að gera enn betur og selja 45.000 slaufur og nú rennur allur ágóði af sölu bleiku slaufunnar beint til leitarstarfsins,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í tilkynningu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert