30 milljón töflur af hjartalyfi frá Actavis til Spánar
Fragtvél á vegum Actavis flaug til Barcelona á Spáni fyrir skömmu með verðmætasta farm sem félagið hefur flutt út í einni sendingu í meira en fimm ár. Vélin flutti töflur af hjartalyfinu Atorvastatin Magnesium, sem framleiddar voru í lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir að sala í spænskum apótekum hefjist væntanlega í dag, en byrjað hafi verið að dreifa lyfinu til heildsala fyrr í vikunni.
Atorvastatin sé mest selda lyfið á spænska markaðinum og raunar á heimsvísu.
„Lyfin fóru öll til viðskiptavina Medis, sölusviðs Actavis sem sér um sölu tilbúinna lyfja til annarra lyfjafyrirtækja. Viðskiptavinirnir eru fjögur stærstu samheitalyfjafyrirtæki á Spáni, en lyfið verður einnig selt undir vörumerki Actavis á Spáni innan skamms. Lyfið er fyrsta samheitalyf frumlyfsins (Zarator® / Cardyl®), sem fáanlegt er þar í landi. Með vélinni fóru 20 milljón töflur og skömmu síðar voru 10 milljón töflur til viðbótar fluttar til Spánar í öðrum sendingum.
Atorvastatin Magnesium er þróað hjá Actavis á Íslandi, en þróunarsvið félagsins í Hafnarfirði gegnir lykilhlutverki í þróun nýrra samheitalyfja hjá Actavis Group. Lyfjaverksmiðjan í Hafnarfirði er sérhæfð í að framleiða ný samheitalyf sem þróuð eru hér á landi, en lyfjaverksmiðjur Actavis eru alls 19 í 14 löndum,“ segir í tilkynningunni frá Actavis.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Innlent Actavis markaðssetur nýtt lyf í fimm Evrópulöndum
- Þriðjudagur, 12. október 2010, Innlent Actavis framleiðir 50% meira
- Miðvikudagur, 4. mars 2009, Innlent Níu sinnum í einkavélum
- Föstudagur, 27. febrúar 2009, Innlent Var ætlað að skilja kolefnishringrásina
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Heimsbyggðin öll í hættu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































