Máli yfirlæknis vísað frá

Eskifjörður. stækka

Eskifjörður. www.mats.is

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur vísað frá máli yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðarbyggðar, en hann var leystur frá störfum í febrúar vegna gruns um að hafa dregið sér fé.

Í kjölfar athugunar ríkisendurskoðunar á embættisfærslu læknisins í júní sl. var máli hans vísað til ríkissaksóknara sem aftur fékk embætti lögreglustjóra Eskifjarðar rannsókn þess. Rannsókninni lauk nýverið og telur lögreglustjórinn ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.

Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunnar Austurlands, telur niðurstöðuna sérkennilega og viðurkennir að hann hafi vænst annars. Málið hafi hins vegar verið rekið af ríkisendurskoðun og því óvíst hvert framhald þess verður. Einar hefur hins vegar ekki fengið gögn um frávísunina og getur því ekki tjáð sig efnislega um hana.

Yfirlækninum Hannesi Sigmundssyni var vísað tímabundið frá störfum vegna rannsókna á reikningum sem frá honum stöfuðu. Hannes hefur sjálfur haldið því fram frá upphafi málsins að hann hygðist snúa aftur til starfa hjá HSA þegar rannsókn lyki. Einar segir hins vegar ekki ljóst um framhaldið.

„Þó að lögreglan hafi vísað ákæru um fjárdrátt frá á eftir að ljúka úrvinnslu málefna læknisins hjá stofnuninni. Ég get ekki tjáð mig frekar um viðbrögð stofnunarinnar fyrr en ég hef séð skýrslu lögreglunnar, niðurstöður landlæknis á starfsemi HSA í Fjarðabyggð og upplýst verður um viðbrögð Ríkisendurskoðunar við frávísuninni.“

Utan þess að ríkisendurskoðun fjallaði um mál Hannesar fór landlæknisembættið yfir fagleg vinnubrögð hans. Í áliti sem landlæknir skilaði í sumar er heildarniðurstaða sú, að læknirinn þurfi að bæta vinnubrögð sín.

Með tilliti til aðstæðna var það þó álit landlæknis, að það gæfi ekki tilefni til  áminningar eða annarra íþyngjandi aðgerða. Lokaákvörðun biði hins vegar niðurstöðu ríkisendurskoðunar.

Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu er málinu lokið að hálfu þess í ljósi niðurstöðu lögreglustjórans á Eskifirði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU ROCKWOOD 1904 ÁRGERÐ 2008 10 FE
Til sölu Rockwood 1904, árgerð 2008, 10 fet. Ýmis aukab...
ÁRSREIKNINGAR LÖGAÐILA
Ársreikningar lögaðila (ehf.) Færsla á bókhaldi, ...
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
Lenovo spjaldtölva "7 skjár - ný
Til sölu Lenovo spjaldtölva með 7"skjá, 512 MB minni, 16GB disks og Android stýr...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....