Samskip fá ekki bætur fyrir tilboðsgerð
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Samskipa um að fyrirtækið fái greiddan kostnað vegna tilboðsgerðar í útboði á nýrri Vestmannaeyjaferju. Tvö tilboð bárust en tilboð Samskipa taldist ekki uppfylla sett skilyrði.
Ríkiskaup efndi til lokaðs útboðs fyrir hönd Siglingastofnunar Íslands í að eiga, fjármagna, hanna og smíða ferju og annast rekstur og starfsemi til ferjusiglinga milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja til 15 ára. Þátttakendur voru valdir með forvali og var fjórum fyrirtækjum boðið að gera tilboð.
Tvö tilboð bárust, annað frá Vinnslustöðinni hf. og Vestmannaeyjabæ sameiginlega og hitt frá Samskipum. Við opnun tilboða í apríl á síðasta ári var talið að tilboð Samskipa uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsgagna og var það því talið ógilt og ekki skoðað frekar. Vegna þessa var Samskipum ekki greidd þóknun fyrir tilboðsgerð en í útboðsskilmálum kom fram að verkkaupi greiddi 2 milljónir króna fyrir gerð tilboðs sem teldist fullnægjandi.
Samskip taldi ekki réttmætt af hálfu Ríkiskaupa að ógilda tilboðið og krafðist þess að fá milljónirnar tvær greiddar. Ríkiskaup hélt því hins vegar fram að Samskip hefðu aldrei skilað gildu tilboði.
Fjölskipaður héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni, að Ríkiskaupum hafi verið rétt að líta svo á að tilboð Samskipa fullnægði ekki þeim skilyrðum sem þurftu að vera fyrir hendi til þess að það teldist gilt. Af því leiði, að ekki komi til álita að Samskipum verði greidd þóknun fyrir tilboðið.
Þess má geta, að Ríkiskaup tóku upp viðræður við Vinnslustöðina og Vestmannaeyjabæ um tilboð þeirra, sem þótti of hátt. Eftir nokkurra vikna viðræður ákvað ríkisstjórnin að hætta við smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd en bjóða þess í stað út smíði ferju með hefðbundnum hætti og bjóða síðan út rekstur hennar sérstaklega.
Eftir bankahrunið sl. haust voru þær hugmyndir hins vegar einnig lagðar til hliðar og nú er útlit fyrir að nota verði núverandi Herjólf til bráðabirgða, þegar siglingar hefjast milli nýrrar Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Tveir kostir í stöðunni
- Fimmtudagur, 30. október 2008, Innlent Engin starfsemi Samskipa úr landi
- Sunnudagur, 15. febrúar 2009, Innlent Mun Herjólfur sigla í Bakkafjöru?
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Með tæp 40 grömm af amfetamíni
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Útboð á fjarskiptum fyrir LSH endurtekið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































