Kreppan eins og prump í eilífðinni
Anna Pála Sverrisdóttir, fráfarandi formaður Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, lagði mikla áherslu á umhverfis- og náttúruverndarmál í ræðu sinni á landsþingi UJ í Iðnó í dag.
Kvaðst hún stolt af einarðri afstöðu UJ í þeim málum. Fyrsta verk hennar í stjórn hefði verið að keyra austur fyrir fjall upp að neðri Þjórsá til að afhenda bændum aðdáendabréf fyrir þeirra baráttu gegn átroðslu Landsvirkjunar.
Það væri baráttumál ungs fólks í Samfylkingunni að hafna frekari uppbyggingu álvera þar með talið í Helguvík og á Bakka - framtíðin geti verið meira spennandi. ,,Efnahagskreppan núna er eins og prump í eilífðinni, miðað við það sem bíður okkar, ef við bregðumst ekki strax við loftlagsbreytingum. Gerum eitthvað í þessu!" sagði Anna Pála, samkvæmt tilkynningu frá UJ.
Anna Pála sagði að Icesave málið væri lausaleikskrógi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Ljóst væri að Samfylkingin þyrfti að ganga því í föðurstað. ,,Samfylkingin axlar ábyrgðina; ætlar að klára málið og sjá um að reka þetta land."
Anna Pála gerði einnig athugasemdir við hversu mikill niðurskurður væri boðaður á Tækniþróunarsjóði, hvatti til umbóta í málefnum hælisleitenda og baráttu fyrir réttindum samkyhhneigðra á alþjóðavettvangi og sagði inngöngu í ESB mikilvægasta liðinn í uppbygginu Íslands.
Anna Pála sagðist vilja, að Íslendingar beiti sér markvisst fyrir réttindum samkynhneigðra á alþjóðavettvangi. Ísland geti verið mikilvæg fyrirmynd en hrikaleg mannréttindabrot séu framin gegn samkynhneigðum á hverjum degi um heim allan, líka í næstu nágrannalöndum Íslands. Hún sagði að þó Ísland standi framarlega í réttindamálum samkynhneigðra megi samt alltaf gera betur.
„Þannig vil ég ein hjúskaparlög strax af því að það á ekki að skipta máli hverjum maður verður ástfanginn af og vill giftast. Við höfum lesbíu sem formann Samfylkingarinnar og forsætisráðherra. Það er magnað. Verst að ég sjálf kom ekki út úr skápnum fyrr en fyrir nokkuð stuttu. Þetta hefðu getað orðið góðar fyrirsagnir: Samfylkingunni er stjórnað af lesbíum."
Í lok ræðu sinnar minntist Anna Pála á það þegar hún, fyrir ári, sagði í ræðu á landsþingi 2008 að Davíð Oddsson væri efnahagslegt gereyðingarafl. ,,Fólk tók þessu ekki alvarlega þá. En þetta urðu aldeilis áhrínisorð," sagði Anna Pála kvaðst vilja fara með fleiri áhrínisorð: ,,Bjarni Benediktsson er róttækasti feministi Íslands. Sigmundur Davíð mun í alvöru redda 2000 miljarða króna láni á 4 % vöxtum," sagði hún þá. Að ári liðnu mætti sjá hversu sannspá hún hafi orðið í þetta skiptið.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Hrellir Færri Möllera -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir AGS kreistir lífsneistann úr samfélaginu -
Páll Rúnar Pálsson Prump í nútíðinni. -
Ásdís Sigurðardóttir ÉG skil nú bara ekki þessa hallærislegu setningu hjá konunni. -
Björn Heiðdal Svín í ESB drullu. -
-
Haraldur Pálsson Já svei mér þá, sennilega eru íslendingar heimskasta fólk í ... -
Þráinn Jökull Elísson Prumpum og prumpum... -
Þórður Guðmundsson ...sem og líf okkar allra, eitt andvarp eða ... -
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Æ,æ, þrátt fyrir allt prump í eilífðinni... -
Bergur Thorberg ... áður en kúkurinn kemur -
-
Guðni Karl Harðarson Áfram Ísland "Okkar Ísland" ný leið í nýju Hagkerfi -
Sigríður Sigurðardóttir Prump í eilífðinni! -
Viðar Friðgeirsson Fyrirbæri -
Baldur Hermannsson Ungir Samfylkingarmenn prumpa upphátt
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. október 2008, Innlent Krefjast þess að Davíð víki
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Anna Pála Sverrisdóttir fyrsti varaþingmaðurinn
- Sunnudagur, 4. október 2009, Innlent Tekist á um stjórnmálastefnur á landsþingi UJ
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Innlent Unnið að setningu einna hjúskaparlaga
- Laugardagur, 28. mars 2009, Innlent Aðrir flokkar án peningastefnu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































