Samþykktu Icesave blindandi
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, sagði í Silfri Egils í dag, að ríkisstjórn Íslendinga hefði samþykkt Icesave-samningana blindandi, án þess að hafa séð þá „fyrir utan einn mann sem heitir Ögmundur Jónasson og hefur nú verið gerður brottrækur úr ríkisstjórn." Það sama hefðu þingflokkar stjórnarflokkanna gert að undanskildum nokkrum þingmönnum VG.
„Það er gríðarlegur missir að Ögmundi Jónassyni í ríkisstjórn Íslands," sagði Guðfríður Lilja. „Ég hef stutt þessa ríkisstjórn af fúsum og frjálsum vilja og geri enn. Ríkisstjórnin veikist hins vegar gríðarlega sem vinstristjórn... Það sem ég held að ríkisstjórnin ætti að gera núna er að endurskoða allt sem hún hefur gert og bjóða Ögmundi Jónassyni aftur að borðinu fyrir Ísland."
Þegar Guðfríður Lilja var spurð hvort hún væri ekki í raun að segja að VG væri klofinn flokkur og hluti hans væri á leið út úr ríkisstjórninni svaraði hún neitandi en sagði, að ríkisstjórnin yrði að taka sig á með opnari og lýðræðislegri vinnubrögð að leiðarljósi.
Guðfríður Lilja sagði að niðurstaða í Icesave-samningum yrði að fá að koma fyrir Alþingi og fá þar opna og lýðræðislega meðferð. Fyrir því hefði Ögmundur beitt sér í ríkisstjórninni en þar hefði verið krafa um að menn hefðu eina skoðun á málinu.
Þá gagnrýndi hún þær yfirlýsingar forsvarsmanna stjórnarinnar að það yrði að liggja fyrir að meirihluti væri fyrir málinu á Alþingi ef leggja ætti niðurstöðu Icesave-samninga fyrir þingið. „Alþingi á að koma að þessu máli óhlekkjað," sagði Guðfríður Lilja.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Öflug Guðfríður Lilja lætur ekki hlekkja sig -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Rödd skynseminnar hefur talað. -
Sigurður Jónsson Samþykktu samninginn blindandi. Ögmundur rekinn úr ríkisstjórninni. -
Kristinn Pétursson Guðfríður Lilja kom sterk inn í Silfri Egils -
Þórarinn Þ Gíslason NÚ HEIMTUM VIÐ ÞAÐ AÐ RÁÐHERRAR OG ÞINGMENN ÞIGGI STRÍPUÐ ... -
Ingimundur Bergmann Skák og mát -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Þjóðarsvik vinstristjórnarinnar afhjúpuð -
Baldvin Jónsson NÚ ÞARF AÐ LÁTA ÞETTA FÓLK HEYRA ÞAÐ -
Gísli Tryggvason Hverjir bera mögulega ábyrgð? -
Stefán Friðrik Stefánsson Guðfríður Lilja tekur sér varðstöðu með Ögmundi -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Guðfríður Lilja var málefnanleg í Kastljósi dagsinsins. -
Magnús Helgi Björgvinsson Ég á bara ekki orð! -
Ómar Geirsson Óskiljanlegt að Guðfríður skuli ennþá styðja stjórnina. -
Ingólfur H Þorleifsson Minnihlutastjórn. -
Jón Ingi Cæsarsson Kim il Ögmundur..? -
Hólmfríður Bjarnadóttir ICESAVE, Ögmundur og Guðfríður Lilja. -
Hörður J Oddfríðarson Guðfríður með geislabauginn -
Ólafur Als Ákall þingkonunnar ... -
Jón Baldur L'Orange Guðfríður Lilja ber ábyrgð á gjörðum ríkisstjórnarinnar
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. október 2009, Innlent Þingflokkur VG fundar í kvöld
- Miðvikudagur, 21. október 2009, Innlent Lásu þau Icesave-plöggin?
- Þriðjudagur, 11. ágúst 2009, Innlent Stjórnarsamstarf undir Ögmundi komið
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent Valtur meirihluti í Icesave
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Þingflokkur VG á fundi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































