Bíll brann til kaldra kola

Þriggja ára amerískur jeppi brann til kaldra kola í Dimmuhvarfi í Kópavogi um þrjú leytið í nótt. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Að sögn hennar var nóttin að öðru leyti róleg.

Ein bílvelta varð á Akureyri í nótt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og var hann fluttur á slysadeild eftir að hafa kvartað undan eymslum í baki og hálsi. Bíllinn endaði á hvolfi og er stórskemmdur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert