Gagnrýna forgangsröðun stjórnvalda

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum og skattamálum. Ljóst er að ríkisstjórnin fer leið skattahækkana í stað þess að taka til í rekstri ríkisins og fresta eða leggja af ýmis gæluverkefni og verkefni á vegum hins opinbera.

Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem var samþykkt í kvöld. Hún er eftirfarandi:

„Ókostir skattahækkana eru vel þekktir og er sérstaklega brýnt í núverandi aðstæðum að íþyngja ekki launþegum og atvinnurekendum ofan á allt annað. Aukin skattheimta mun draga úr ráðstöfunartekjum heimilanna, auka á samdráttinn í atvinnulífinu sem aftur leiðir til aukins atvinnuleysis. Hærri skattar þýða minni framleiðni þar sem hvatinn til athafna verður því minni sem skattprósentan er hærri. Þá er hætta við því að aukin skattheimta leiði til svartrar atvinnustarfsemi.
 
Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að leita annarra og skynsamlegri leiða við að leiðrétta fjárlagahallann. Mikil útþensla ríkissjóðs undanfarin ár veitir svigrúm til niðurskurðar og hagræðingar í ríkisrekstri. Ljóst er af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að ríkið er enn að verja almannafé í gæluverkefni. Það eru ótrúleg skilaboð á sama tíma og skattar eru hækkaðir á fjölskyldur í landinu sem berjast við að ná endum saman, að ráðherrar ríkisstjórnarinnar skammti sér tugi milljóna í ráðstöfunarfé. Að sama skapi er ráðist í ýmis verkefni sem bera ekki með sér að ríkissjóður sé í miklum vanda, t.d. að milljónum króna sé varið í ritun Biskupasögu og rekstur listskreytingarsjóðs, hálfum milljarði sé varið í „verðmiðlun landbúnaðarvara“, tugum milljóna í „jöfnunarsjóð alþjónustu“ og nokkrum milljónum í „garðávaxtasjóð“, svo nokkur dæmi séu nefnd.
 
Þá telur stjórn Heimdallar miður hve illa stjórnvöld hafa tekið í hugmyndir um aukna tekjuöflun hins opinbera eftir öðrum leiðum en hækkun tekjuskatta, s.s. með því að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði. Sú aðgerð gæti fært ríkissjóði tugi milljarða í tekjur en hlaut ekki náð fyrir eyrum stjórnvalda.
 
Fólkið í landinu stendur ekki undir frekari skattahækkunum eftir þau áföll sem á hafa dunið. Það er þversögn hjá ríkisstjórninni að ætla í öðru orðinu að aðstoða skuldugt, ungt fólk, en þyngja í hinu orðinu álögur á þennan hóp og gera því þannig erfiðara um vik að vinna sig út úr vandanum.
 
Leiðin út  úr kreppunni er verðmætasköpun. Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að skapa þau skilyrði að atvinnulífið geti starfað á ný. Þannig verða til fleiri störf með fleiri skattgreiðendum og fyrirtækjum sem starfa og greiða skatta.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
Létt á líkama - létt í lund. Hefst 24.5.
4ra vikna lokaður átakshópur fyrir þig sem vilt breyta um lífsstíl. Ekkert auk...
HUMARHLAÐBORÐ - Hafið Bláa - Velkomin !
Humarhlaðborð öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00 Borðapantanir í síma 483 1000. M...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...