Fréttaskýring: Samstarf vísinda og veiða skiptir sköpum

Væntingar til loðnuveiða í vetur eru ekki miklar. stækka

Væntingar til loðnuveiða í vetur eru ekki miklar. Rax / Ragnar Axelsson

Morgunblaðið Eftir Ágúst Inga Jónsson

Óvissa einkennir stöðu uppsjávarflotans. Finnst loðnan? Braggast síldin? Gefur gulldeplan aftur færi á sér? Til að reyna að svara spurningum sem þessum er framundan aukin samvinna fiskifræðinga og útvegsins.

Samvinna Hafrannsóknastofnunar, útgerða, sjómanna og ráðuneytis er ekki ný af nálinni. Sérstaklega hefur þetta verið áberandi í loðnu og síld síðustu fimm árin. Einmitt þessir tveir stofnar, þ.e. íslenska sumargotssíldin og loðnan, hafa átt undir högg að sækja og sérstök áhersla verður á næstunni lögð á þessa stofna, auk þess sem makríllinn bætist nú við.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að þetta samstarf hafi skipt sköpum fyrir báða aðila, tekist hafi að ná mælingum og hefja veiðar fyrr en ella. Verulegur kostnaður hafi fylgt þessu fyrir sjómenn og útgerðir og þó leyfi hafi á stundum verið gefin til einhverra veiða samhliða leit þá sé það aðeins upp í brot af kostnaði.

Makrílleit og gulldepluveiðar

Fjögur skip halda til makrílleitar á mánudag í samvinnu Hafrannsóknastofnunar og Landssambands íslenskra útvegsmanna. Leitað verður fyrir Suðausturlandi og er megintilgangurinn að afla upplýsinga um hversu lengi makríl er að finna í íslenskri lögsögu og fylgjast með gönguleiðum hans þegar hann dregur sig til baka á vetursetustöðvar í Norðursjó og norðan og vestan Bretlandseyja. Komi í ljós að makríll er enn í lögsögunni verða þær upplýsingar eflaust kynntar í viðræðum við svokallaðar strandþjóðir um makrílveiðar í Norður-Atlantshafi á fundum síðar í haust.

Skipin sem taka þátt í leitinni eru Ingunn sem fer frá Vopnafirði, Hoffellið frá Fáskrúðsfirði og Sighvatur Bjarnason og Kap frá Vestmannaeyjum verða saman með eitt troll. Hafrannsóknastofnunin skipuleggur leitina og hefur ákveðið 30 togstöðvar. Ef makríll finnst á svæðinu er þörf á endurtekningu um sjö til tíu dögum eftir fyrri yfirferð.

Búist er við að fyrstu skipin haldi í vikunni til leitar og veiða á gulldeplu, sem var mikil búbót fyrir uppsjávarflotann á síðasta vetri. Þá veiddist lítilræði af fiskinum í desember, en eftir að veiðarfæri höfðu verið þróuð byrjuðu veiðar fyrir alvöru í janúarmánuði.

Skipstjórnarmenn telja að mögulegt sé að byrja veiðar á gulldeplu í októbermánuði, en megingangan komi inn á miðin suðaustur af landinu er kemur fram í nóvember. Gulldeplan gangi síðan í vesturátt, en göngur séu breytilegar eftir árum. Hafrannsóknastofnun mun fylgjast með leit og veiðum skipanna sem fyrst halda á gulldeplumið og hyggst þá mæla stofninn eftir því sem upplýsingar berast.

Það er á áætlun hjá Hafrannsóknastofnun að meta íslensku sumargotssíldina í nóvember með tilliti til stofnstærðar og sýkingar í stofninum. Hugsanlegt er að síldveiðiskip fari fyrr til síldarleitar í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Ekki hefur verið gefinn út kvóti á íslensku síldina.

 Mikil óvissa með loðnuna

Loðnan var til skamms tíma mikilvægust uppsjávartegunda, en síðustu tvær vertíðir hefur lítill kvóti verið gefinn út. Það á einnig við um komandi vertíð. Mikil óvissa er um veiðistofn loðnu og miðað við mælingar á ungloðnu í fyrra eru ekki miklar væntingar til veiða í vetur.

Hafrannsóknastofnun fer í fjögurra vikna leiðangur um miðjan nóvember þar sem ungloðna verður meðal annars mæld. Nú er unnið að því að loðnuskip, í samvinnu við Hafró, fari til leitar í byrjun í janúar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
Heil/parta nudd sniðið að þínum þörfum.
Lúxus dekur þar sem þú velur áherslusvæði t.d. herðar, herðablöð, háls, axilir, ...
WESTERN CANADA EXCHANGE
WESTERN CANADA EXCHANGE I live near the Rocky Mountains in western Canada and am...
Toyota Hilux 2006
Hvítur Toyota Hilux árgerð 2006 til sölu. Ekinn 116.000 km, beinskiptur, dráttar...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...