Ekki kreppa í bókaútgáfu

Bækur og bókakiljur stækka

Bækur og bókakiljur Þorvaldur Örn Kristmundsson

Morgunblaðið eftir Einar Fal Ingólfsson

„Þetta er langviðamesta útgáfa sem við höfum ráðist í. Þegar eru komnar úr prentun 17 bækur á árinu og titlarnir verða um 35 í allt,“ segir Kristján Kristjánsson útgefandi hjá Uppheimum á Akranesi. Í fyrra gáfu Uppheimar út um 20 bækur. Ýmissa grasa kennir á útgáfulistanum. Meðal annars eru ljóðabækur eftir Ísak Harðarson, Njörð P. Njarðvík, Gyrði Elíasson og Gunnar M. Gunnarsson. Þá vekur athygli að Böðvar Guðmundsson er með nýja sögulega skáldsögu.

Enn er morgunn er stór og mikil söguleg skáldsaga eftir Böðvar. Hún gerist á fyrri hluta 20. aldar og rekur mikla örlagasögu þýsks gyðings sem hrekst til Íslands. Þetta er tónlistarmaður sem kemur sér fyrir í reykvísku samfélagi,“ segir Kristján. „Þetta er sterk bók sem ég tel eiga erindi við samtímann.

Við erum að vinna að skáldsögu eftir Kristínu Ómarsdóttur sem heitir Hjá brúnni. Sem fyrr er mikill sprengikraftur í Kristínu og mikil póesía. Þá er Ævar Örn Jósepsson með bók, eða svo segir hann! Hann var að skrifa fram eftir nóvember í fyrra, enn er bara októberbyrjun þannig að ég er sallarólegur ennþá.“ Kristján hlær. „Ég get ekkert sagt um þá bók, hann getur tekið uppá því að endurskrifa hana ef það dregur til tíðinda í íslensku samfélagi.

Bjarni Bjarnason sendir frá sér skáldsögu, ansi magnað verk sem heitir Leitin að Audrey Hepburn og er öðrum þræði sjálfsævisögulegt skáldverk. Finnbogi Hermannsson er að vinna framhald bókarinnar Í húsi afa míns, bók sem hefur vinnuheitið Í fótspor afa míns. Það handrit stendur tæpt en ég hef grun um að það muni koma út. Landið sem aldrei sefur eftir Ara Trausta Guðmundsson mætti flokka sem tilraunakennda ferðaskáldsögu.“

Íslendingar hliðhollir bókinni

Uppheimar gefa út þrjú greinasöfn, Sporaslóð, sagnaþætti eftir Braga Þórðarson, Boðskort í þjóðarveislu, safn greina um gildi, samfélag og bókmenntir eftir Bjarna Bjarnason, og Gleymskunnar bók, greinasafn um bókmenntir eftir Magnús Sigurðsson.

Eitt stærsta þýðingarverk ársins er Óþekktur hermaður eftir Vainö Linna sem Sigurður Karlsson hefur þýtt en eldri þýðingin er stytt og var ekki gerð úr finnsku. Tíu vísur er ný barnabók eftir Helgu Egilson, sem myndskreytir þekktar barnavísur, og meðal annarra bóka má nefna verk um list og feril Ásgerðar Búadóttur veflistakonu.

Kristján segir ekki vera kreppu í bókaútgáfu.

„Við merktum aukningu í bóksölu í sumar, bóklestur er að aukast og aðsókn að bókasöfnum hefur aukist. Þó að markaðurinn muni hugsanlega straumlínulagast eitthvað vegna ástandsins held ég að Íslendingar verði hliðhollir bókinni,“ segir hann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum í nánd við Gróðrarstöði...
DÖMUSKÓR
Teg: 7315 Sérlega mjúki og þægi- legir dömuskór...
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
Létt á líkama - létt í lund. Hefst 24.5.
4ra vikna lokaður átakshópur fyrir þig sem vilt breyta um lífsstíl. Ekkert auk...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...