Hrunið í eðli sínu tjón á pappír

Gylfi Magnússon.
Gylfi Magnússon.

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að það bakslag sem sem Íslendingar hefðu lent í væri vissulega verulegt og djúpt en það  færði þjóðina ekki aftur í aldir í lífskjörum heldur um nokkur ár. Gríðarlegt tjón hefði orðið í bankahruninu en það væri í eðli sínu tjón á pappír og raunveruleg verðmæti landsins hefðu lítið breyst.

Gylfi sagði, að fjármálakreppan væri í aðalatriðum vandi ríkra þjóða. Kaupmáttur og landsframleiðsla lækkuðu um mörg prósent en þessar hagstærðir hefðu verið afar háar áður hér á landi. 

„Við höfum það þrátt fyrir allt mjög gott þótt við höfum það ekki alveg jafn gott og við höfðum það í fyrra og hitteðfyrra," sagði Gylfi.

Hann sagði hins vegar ljóst, að tjónið vegna hruns fjármálakerfisins væri gríðarlegt á alla mælikvarða. Fjármagnseigendur hefðu á að giska tapað sjöfaldri landsframleiðslu Íslands. „Ég þekki engin dæmi í veraldarsögunni um að eitt land hafi valdið slíku tjóni hjá fjármagnseigendum. Vissulega eru flestir þessir fjármagnseigendur útlendingar en tjónið er þarna engu að síður," sagði Gylfi.

Tæpar fimm landsframleiðslur eru að sögn Gylfa kröfur á föllnu bankana sem verði ekki greiddar nema að litlum hluta en afgangurinn sé hrun á verðmæti hlutabréfa í kauphöllinni en verðmætið þar hafi verið orðin tvöföld landsframleiðsla þegar það það lækkaði um nánast 95%.

„Þetta var raunverulegt tjón frá sjónarhóli þeirra sem áttu þessi verðbréf. En við verðum samt að hafa í huga að þetta er í eðli sínu tjón á pappír. Hlutabréf og skuldabréf eru ávísanir á verðmæti. Þessar ávísanir eru nú innistæðulitlar eða -lausar en það hefur lítið breyst hve mikil raunveruleg verðmæti landið á," sagði Gylfi.

Hann sagði að fframleiðslugeta landsins væri nánast óbreytt, mannauðurinn væri nánast allur hér og hefðialdrei verið meiri í Íslandssögunni. Innviðirnir, náttúruauðlindirnar, menningin og sagan, væru enn til staðar og á því væri hægt að byggja.

„Okkar Bankastræti hrundi, fjármálakerfið hrundi, nær allar þessar peningalegu eignir urðu lítils virði en eftir stendur allur raunauðurinn," sagði Gylfi og bætti við að á þessu byggðist leiðin út úr vandanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert