Fólk treystir ekki bönkunum
Lögreglan nýtur mikils trausts 80.9% almennings, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Háskóli Íslands (HÍ) nýtur trausts 69,7% en einungis tæp 3% fólks bera mikið traust til bankakerfisins. Þeim sem bera lítið traust til bankanna fjölgaði frá könnun í maí 2008 úr 71,6% í 80% nú.
Auk lögreglunnar og HÍ sem njóta mikils trausts svarenda nýtur Ríkisútvarpið mikils trausts 64,2% og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 54% svarenda. Mikil skilur á milli traustsins til lögreglunnar, háskólanna og RÚV og annarra sem MMR kannaði traust til í könnun sinni 9.-14. september síðastliðinn.
Traust til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur minnkað mikið. Traust til AGS stendur nú í 5,5% en það fór hæst í 17,8% í desember síðastliðinum. Þeim sem segjast bera lítið traust til AGS hefur fjölgað verulega. Þeir sem báru lítið traust til sjóðsins voru 38,7% í desember 2008, 50% í maí síðastliðnum og 65,3% bera lítið traust til AGS nú.
Í úrtaki MMR voru einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunin var gerð í gegnum síma og á netinu. 909 einstaklingar svöruðu. Könnunin var gerð 9.-14. september.
|
|
Fréttatilkynning MMR um traust til stofnana |
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Innlent Fáir treysta fjármálakerfinu
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Lítið traust á Útlendingastofnun
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Traust á Alþingi fer þverrandi
- Föstudagur, 15. október 2010, Innlent Bankakerfið á botninum
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Flestir treysta RÚV
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































