Merki um siðrof í þjóðfélaginu
Greina má merki um visst siðrof, það er virðingarleysi fyrir fulltrúum ríkisvaldsins, á útrásartímabilinu, að því er segir í stöðuskýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið. Hins vegar bendi tölur til þess að hér ríki ekki almennt siðrof. Fram kemur í skýrslunni að leiða megi líkur að því að ef rannsóknin á bankahruninu gengur hratt, ef niðurstaðan er trúverðug og ef réttlætinu verður fullnægt þá muni það verða til þess að efla traust á stofnunum ríkisins.
Tortryggni í garð viðskiptalífsins
Í skýrslunni kemur fram að svo virðist sem dregið hafi úr trausti til tiltekinna stofnana á útrásartímabilinu svokallaða. „Myndin er hinsvegar hvorki einhliða né afgerandi. Fyrir það fyrsta virðist sem að íslenska þjóðin hafi búið að traustum grunni félagslegra tengsla og trausts í samfélaginu, bæði til stofnana og á milli samborgara. Þá virðist hafa dregið úr tíðni afbrota í flestum brotaflokkum en þeir brotaflokkar þar sem tíðnin óx mátti lesa sem merki um visst siðrof, þ.e. virðingarleysi fyrir fulltrúum ríkisvaldsins, og sem afleiðingu aukins ójafnaðar.
Þá bar á vaxandi tortryggni í garð viðskiptageirans vegna spillingar á árunum 2005-2009. Eins eru ekki komin öll kurl til grafar varðandi rannsókn á því hvort stórfelld efnahagsbrot hafi verið framin," segir í skýrslunni sem unnin var af Félagsvísindastofnun og Hagfræðistofnun HÍ.
Vissar ríkisstofnanir biðu mikinn álitshnekki
Stofnanirnar tvær segja, að svo virðist sem vissar stofnanir ríkisvaldsins hafi beðið mikinn álitshnekki. Það eigi þó ekki við um allar stofnanir og ríkisvaldið sem slíkt. Eins bendi tölur um tíðni afbrota fyrir og eftir bankahrun að hér ríki ekki almennt siðrof.
„Það er því ljóst að allt tal um almenna upplausn í íslensku samfélagi á ekki við rök að styðjast. Það þýðir þó ekki að íslenska þjóðin sé komin í var. Það eru nokkrir hlutur sem standa upp úr sem þarf að huga að. Það þarf að efla tiltrú almennings á stofnunum lýðræðisins og réttarkerfisins. Þá þarf að huga að umgjörð viðskiptalífsins til að draga úr grunsemdum um spillingu," segir í skýrslunni.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent ÖSE fylgist með kosningunum
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Íslenskur gítarstillir slær í gegn
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Húsnæði langt umfram þörf
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Bar ekki að yfirtaka Icesave-skuldir
- Miðvikudagur, 23. júní 2010, Innlent Litlar breytingar á gosstöðvunum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































