Útlit fyrir minni halla hjá Akureyrarbæ
mbl.is
Útlit er fyrir að rekstrarhalli bæjarsjóðs Akureyrar nemi 985 milljónir króna í ár en fyrri áætlun hljóðaði upp á 1.100 milljón króna halla. Munar mestu um auknar útsvarstekjur bæjarfélagsins, samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar sem lögð er fram á fundi bæjarstjórnar í dag.
Skatttekjur hækka um 426 milljónir króna
Forsendur upphaflegrar áætlunar hafa að mestu haldið, að því er segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Reiknað var með 7% verðlagsbreytingu á milli ára en endurskoðuð áætlun gerir ráð fyrir 7,9% hækkun verðlags. Þessar forsendur hafa mikil áhrif á fjármagnsgjöld eins og kom fram í upphaflegri áætlun en reiknað var með halla upp á tæpar 1.100 milljónir króna.
Í endurskoðaðri fjárhagsáætlun kemur fram að skatttekjur bæjarins hækka um 426 m.kr. og verða 7.443 m.kr. Munar þar mestu um auknar útsvarstekjur upp á 318 m.kr. Þetta skýrist fyrst og fremst að því að efnahagsþrengingar þjóðarinnar hafa ekki komið jafn þungt niður á rekstri Akureyrarbæjar og útlit var fyrir í upphafi ársins.
Útgjöld hækka um 366 milljónir
Útgjöld bæjarsjóðs hafa á móti hækkað um 366 m.kr. og vega þar þyngst kjarasamningsbundnar launahækkanir og hækkun tryggingargjalds sem rennur í atvinnuleysistryggingasjóð. Innri húsaleiga bæjarins hækkar einnig um rúmar 94 m.kr. og annar kostnaður um 164 m.kr. Framlag til reksturs Öldrunarheimila Akureyrarbæjar hækkar um tæpar 50 m.kr. og verður samtals 183 m.kr.
240 milljónir í auknar framkvæmdir
Í vor var samþykkt sameining sveitarfélaganna Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar og hafa áhrif sameiningarinnar nú verið tekin inn í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar. Tekjur og útgjöld vegna hennar eru nánast jafn háir liðir, tekjurnar þó aðeins hærri en gjöldin.
Endurskoðað framkvæmdayfirlit gerir ráð fyrir auknum framkvæmdum upp á um 240 m.kr. og er stærsti einstaki liðurinn þar framkvæmdir við íþróttasvæði við Hamar vegna Landsmóts UMFÍ sl. sumar.
Lántaka Akureyrarbæjar á þessu ári lækkar um 1.100 m.kr. sem stafar að stærstum hluta af því að lokið var að mestu við fjármögnun ársins 2009 í árslok 2008.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Stefnt að hallalausum rekstri Akureyrarbæjar
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Útsvarsprósentan hækkar í Mosfellsbæ í 13,03%
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent Tap á rekstri Ísafjarðarbæjar
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Dalabyggð gerir ráð fyrir afgangi
- Þriðjudagur, 2. júní 2009, Innlent 9,6 milljarða halli hjá Kópavogsbæ
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































